Svona eru dagarnir búnir að vera fyrir utan í gær þá fórum við í kalda bæinn því við gátum bara ekki meir eftir erfiðan morgun, AFS ákvað að láta okkur gera verkefni sem fólst í því að ferðast um allan bæinn minn og taka myndir af asnarlegum hlutum í 40 stiga hita eins og ég sagði hérna áður. Við fórum á hestbak á ljótustu hestum sem ég hef farið á og reiðbúnaðurinn hérna úti er mesta drasl sem til er. Á leiðinni heim sáum við bara allan skóginn að brenna útaf hitanum og var fullt af eld og þetta þykir rosalega eðlilegt. Svo þegar við komum í bæinn þá kíkti ég útum gluggann á rútunni og sá bílslys og lá dauður maður á götunni og allt útí löggum og blóði.. Svo mikið sjokk að sjá þetta og hræðilegt hvað fólki finnst ekkert óeðlilegt við þetta. En núna í þessari viku er semana santa sem er eins og páskar og ætlum við ábyggilega á ströndina, en hérna koma nokkrar myndir :)
Ég þarfnast hjálpar þinnar, fljótt. Blóð b plús, sendið skilaboð eða hringið. Auglýsing inná veitingarstað, spá í að fara selja blóðið mitt..









