Saturday, May 11, 2013

Bloggleysi

Ég verð nú að segja að ég er ekki sú duglegasta að skrifa blogg
Síðasta bloggið var held ég í febrúar en samt finnst mér eins og það hafi verið í gær
Núna eru ekki nema 56 dagar þangað til ég kem heim en það gera 8 vikur sirkabát
Þegar ég ákvað að fara sem skiptinemi þá var ekkert snúið til baka, á kynningarnámskeiðinu í sumar þá var talað um tilfingarússíbana sem ég hélt að ég myndi aldrei ganga í gegnum því að ég taldi mig ekki náin Íslandi og hélt að þetta yrði ekkert mál því mér finnst Ísland hvort sem er ekkert skemmtilegt land til að búa á, en þegar ég kom út, grenjaði ég og grenjaði í marga daga og hætti ekki. 
Þetta er búið að vera erfiðasta lífsreynsla sem ég hef upplifað, ég hefði aldrei getað ýmindað mér að það væri svona erfitt að venjast öðrum venjum og annari menningu þar sem það getur farið í manns fínustu hvernig aðrir hugsa. Það er ótrúlega skrítið ef maður pælir í því að aðeins 10 tímum í flugvél getur verið svo allt annar heimur, fátæktin, maturinn, göturnar og fólkið. Þegar allir þessir þættir ganga í eitt er Ísland gjörólíkt Mexico í alla staði og að fara að búa í eitthverju sem maður er ekki vanur reynir virkilega á en eftir átta mánuði hefur maður vennst öllu og þetta er  annað líf mans. Ég man ennþá eftir hlutunum sem mér fannst stórskrítnir þegar ég kom hingað út en núna eru þeir í daglegu rútínunni þinni eins og ekkert annað hafi nokkur tíman verið gert, en nóg um það. 
Seinustu vikur hafa verið frekar tómlegar, skólin kláraðist í seinustu viku og helltist vatn yfir tölvuna mína þannig ég var tölvulaus í viku sem var mjög skrítið þar sem ég er óvenjulega háð tölvunni minni. Ég mun núna vera í sumarfríi í 2 mánuði áður en ég kem heim og hef ekki hugmynd hvað ég ætla að gera af mér þar sem það er eiginlega of heitt til að fara út á daginn. Ég verð alltaf stressaðari og stressaðari að fara heim, hvernig ég á að koma 1 ári ofaní eina ferðatösku. En ég held ég sleppi nú bara að taka með mér fötin sem ég á og kem með fulla tösku af mexicönskum mat ( ef það verður pláss þar að segja ).

En hérna koma nokkrar myndir þar sem mér finnst myndir alltaf lýsa hlutunum mun betur 


Spring break á ströndinni


Rosa gott!


Alltaf gaman á kvöldin!


Held að bagg sé ekki beint fyrir ítala


Fórum á american football leik sem var það leiðilegasta sem ég hef gert 


Opnun á nýjum skemmtistað


Allt útí mexicönum


Fór með hana til tannlæknis þar sem vinur okkar er tannlæknir þá tók hann skemmt frítt, við reddum okur alltaf réttu samböndunum í Mex..

Ég var boðin um að fara í myndatöku fyrir eitthverja hárgreiðlsustofu og endaði máluð eins og hóra og aldrei liðið jafn vandræðalega með bleikan augnskugga um öll augun.. Fékk að vera mexíkönsk skvísa í einn dag.


Svo fínt stundum að láta sólina skína á sig



Miðbærinn í Tuxtla

Skelltum okkur í kuldann til Sancristobal eina dótt og fengum þetta fína hótelherbergi á 1500 krónur á manninn sem vanalega átti að kosta 10 þúsund.. Alltaf að redda okkur samböndum


Við redduðum okkur á leiðinni í rútunni að slétta á okkur hárið, við erum útlendingar við megum allt


Það var haldið AFS kvöld þar sem við áttum að matreiða disk frá okkar landi og vanalega þá veit ég ekkert hvað ég á að útbúa þannig ég skar niður grænmeti og sósu voða basic haha

En annars eru dagarnir nokkuð rólegir, sofið út og kíkt út á kvöldin en þangað til næst 
xx Brynja

Monday, March 25, 2013

Sumar sumar



Seinustu dagar hafa verið yndislegir þar sem Mexico ákvað að flippa aðeins og skella sér uppí 40 stiga hita þannig hérna höfum við bara verið að sóla okkur & synda og deyja úr hita því það er eiginlega ekki hægt að fara útúr húsi núna því það er svo heitt. Ég fékk svo páskapakkann minn með páskaeggjum og smá nammi, að fá pakka er eins og að fá nýjan iphone, gleðin sem kemur í hjartað mans er ólýsanleg haha.Á föstudaginn fórum við í sund á eitthverjum bar en hérna úti er hægt að kaupa á barnum og í staðinn færðu að synda og um kvöldið fórum við í party sem var svakalega snobbað og á ekkert smá flottum stað.
Svona eru dagarnir búnir að vera fyrir utan í gær þá fórum við í kalda bæinn því við gátum bara ekki meir eftir erfiðan morgun, AFS ákvað að láta okkur gera verkefni sem fólst  í því að ferðast um allan bæinn minn og taka myndir af asnarlegum hlutum í 40 stiga hita eins og ég sagði hérna áður. Við fórum á hestbak á ljótustu hestum sem ég hef farið á og reiðbúnaðurinn hérna úti er mesta drasl sem til er. Á leiðinni heim sáum við bara allan skóginn að brenna útaf hitanum og var fullt af eld og þetta þykir rosalega eðlilegt. Svo þegar við komum í bæinn þá  kíkti ég útum gluggann á rútunni og sá bílslys og lá dauður maður á götunni og allt útí löggum og blóði.. Svo mikið sjokk að sjá þetta og hræðilegt hvað fólki finnst ekkert óeðlilegt við þetta. En núna í þessari viku er semana santa sem er eins og páskar og ætlum við ábyggilega á ströndina, en hérna koma nokkrar myndir :)




Ég þarfnast hjálpar þinnar, fljótt. Blóð b plús, sendið skilaboð eða hringið. Auglýsing inná veitingarstað, spá í að fara selja blóðið mitt..









Tuesday, March 19, 2013

Kominn tími til

Jæja loksins er ég komin með eitthvað til að skrifa um, seinustu vikur hafa verið ansi rólegar og ekki mikið að gera nema skóli og rólegheit. Það hitnar og hitnar hérna í bænum mínum og kvíð ég mjög mikið fyrir Maí þar sem það á að vera tvöfalt heitara þá. Sit hérna undir viftunni nýja besta vini mínum.
Ég fór um helgina til Tapachula í heimsókn til Lárusar, fór í þessa skemmtilegu rútuferð um nóttina. Ég kom semsagt á föstudeginum og beið eftir að hann kom heim úr skólanum. Tapachula er semsagt borg 5 tíma í burtu og rétt hjá landamærunum við Guatemala og er mikið heitara þar. Við fórum eitthvað út með vinum Lárusar og heim til kærustu bróðir hans og tókum við bara rólega, alltaf fínt að fá að tala smá íslensku.
Á laugardeginum fórum við að synda í fínu sundlauginni hans og kæla sig aðeins niður í hitanum og í afmæli um kvöldið. Á Sunnudeginum fórum við svo í annan bæ, löbbuðum uppá rosa flottan útsýnisstað og ég ákvað að vera heppnust og vera bitin 40 sinnum næstum því og er öll stökkbólgin og rauð með ábyggilega síkingu í blóðinu eða eitthvað í þá áttina. Við fórum í hús konu Hitlers sem að hún byggði hérna í Mexico og borðuðum þar og renndum svo aftur heim til Lárusar. Á mánudeginum var byrjað á sundspretti í sólinni og svo keyrðum við yfir til Guatemala og það var svo ótrúlega gaman að sjá annað land. Ég held ég hafi aldrei verið í sama landinu í 7 mánuði í einu og loksins komst ég útúr mexico í 2 klst haha. En þarna voru fólk að vaða yfir ánna til að þurfa ekki að fara í gegnum immigration og löggan horfði bara á. Byssukallar á hverju horni og það var greinilega að það var mikið hættulegra þarna. En annars er páskafríið að byrja og erum við nýbúin að fá litinn hvolp sem er ekkert smá sætur en ætlum við að fara ferðast eitthvað í páskafríinu ég hef bara ekki hugmynd hver þannig ég skrifa betur næst.


Fína sundlaugin hans Lalla


Tapachula


Eitthver smábær

banatré í frumskóginum




ég ofursátt með banana


Chili



Smá tanmunur


Besta snakkið!



Hérna litli sæti voffinn minn

Guatemala

Leiðinni til Guatemala


Landamörkin


& ananas ís!

Sunday, February 17, 2013

Svefnleysi

Ætla skrifa stutt blogg í tilefni því að ég get ekki sofið..
Seinustu helgi fór ég í ferðalag, 10 tímar í bíl eftir skóla í hitanum er ekki skemmtilegt get ég sagt. Stundum skil ég bara ekki mexicana, eða satt að segja aldrei haha! Við fórum í bæ eða fylki sem heitir Oaxaca og var það mjög skemmtileg ferð.


Þetta eru semsagt pýramídar sem að voru byggðir af eitthverjum öðrum indjánum eða hvað sem þetta heitir, en hinir í hinum bloggunum eru sem Mayarnir bjuggu til 


Þetta var ekkert smá fallegt og þarna sá ég mann í bol sem stóð ég elska Ísland, alltaf svo íslandsstolt!



Þetta er kirkjan í miðbænum

Allt í gulli innaní


Fórum að sjá hvernig áfengi er búið til, ákveðið áfengi sem heitir Mezcal og er í svipuðum gír og Tequila en er sterkara og ógeðslegra á bragðið. Þá er semsagt hestur sem kremur þessa plöntu en er þetta eins og pálmatré


Og þarna rennur áfengið úr eftir 20 mínútna framleiðslu, lyktin var ekkert sú ljúfeinkasta þarna


Svo fórum við á ekkert smá fallegan stað þar sem var vatn og rosa fínt útsýni . 


Ég og "stjúpbróðir" minn 


Þarna er fjölskyldan pabba meginn, stjúpbróðirinn, stjúpmamman, pabbin ég & systir mín

Á föstudaginn fórum við svo á AFS kvöld og eftir á heim til einns stráks að dansa salsa, ekkert smá gaman og ekkert skemmtilegra en að gera sig að fíbli og ég sértstaklega er taktslausasta manneksja í heimi og þetta gekk hræðilega en mjög skemmtilegt þrátt fyrir allt saman. Á laugardagskvöldinu var svo afmæli hjá bestu vinkonu minni en ég ákvað að fá svona skemmtilegt mígreniskast um daginn en pinti mig út en endaði ekki lengur en klukkutíma áður en ég fór heim. Það er ekkert skemmtilegast í heimi að eyða laugardagskvöldi heima í vímu úr verkjalyfjum og geta ekki gert neitt. En núna á næstunni er ekkert spennandi að fara gerast, bara skóli og vonandi kemur eitthvað nýtt upp. 

Þangað til næst xx

Thursday, February 7, 2013

Maður með sveðju

Áður en þið lesið verð ég að vara ykkur við, ég fékk þessi skemmtilegu skilaboð frá bestu vinkonu minni að íslenskan mín hefði ekki verið mjög góð áður en ég fór út en núna er hún hræðilegt... Verðið að afsaka stafsetningarvillur og vitlaust orðað takk

Ég ætla byrja bloggið í dag á skemmtilegu strætóferðinni minni í skólann á morgun. Ég sat þarna sultuslök og hlustaði á tónlist, stendur ekki maður upp með sveðju og exi og labbar framhjá mér.. Það sem fólki dettur í hug hérna úti..
Allavegana er ég búin að vera með ódugleg að blogga eins og held ég flestir skiptinemarnir.. Þegar ég var að lesa bloggið hjá hinum skiptinemunum áður en ég fór út fannst mér óþolandi hvað það leið langt milli blogga en núna átta ég mig á því hvað maður er rosalega latur við að gera þetta. Verðið að afsaka það elsku lesendur.

Seinasti mánuður er búinn að vera mjög atburðaríkur
Ég sagði ykkur seinast frá því að ég væri að byrja í nýjum skóla og ég byrjaði ótrúlegt en satt. Skólinn er eins og einkaskólarnir í bíómyndunum. Það kostar ekki meira en minna en 100 þúsund íslenskar mánuðurinn í skólanum ( verð að monta mig smá, svo flott tækifæri að fá að vera í þessum skóla) og allir rosalega vingjarnlegir og allveg athyglin í hámarki. Ég er byrjuð að vera duglegri í ræktinni þar sem það er rækt í skólanum og vonandi fara þessi afs kíló að fjúka af, ef ég stenst mexicanska matinn þar að segja. Ég byrjaði bara á því að fara í viku í skólann og svo kom Lárus til Tuxtla og við fórum saman á flugeldasýningu í öðrum bæ. Þar fékk ég að hitta fjölskylduna hans og horfa á þessa flottu sýningu.



 Daginn eftir kom hann svo að gista heima hjá mér því að fjölskyldan hans fór aftur til Tapachula. Við fórum að skemmta okkur ágætlega með pabba mínum og systur minni og endaði það mjög skrautlega eins og flest öll kvöld með pabba mínum. Voru svo AFS búðir næst á stafni. Þetta voru semsagt mid-stay camp og vorum við þarna 24 akkúrat búin að vera 5 mánuði í nýja landinu. Í þessum búðum gerðum við allskonar hluti sem voru svipaðir seinstu 2 búðum, leikir, fræðsla og hvernig líðan þín er. Þarna áttaði ég mig á því hvað ég væri búin að breytast rosalega mikið! Ég hefði aldrei dottið í hug að vandræðalega ég gæti verið svona opin og auðvelt með að kynnast fólki þó að það var ekkert sérlega erfitt áður er það þúsund sinnum auðveldara núna. Það var sundlaug og fyrstu nóttina kl 12 tókum við eftir henni og spurðum manninn sem er yfir afs í mexico hvort við mættum hoppa útí og hann svaraði með því að hann hefði í þykistunni aldrei séð okkur þannig við fórum öll í sund í fötunum, rosalega mexicanskt eða suður- amerískt frekar að fara í sund í fötunum en svona gerist þegar enginn er með sundföt.


Þetta voru rosalega skemmtilegar búðir ótrúlegt en satt og á laugardeginum tókum við því rólega og fórum í afmæli hjá vinkonu minni og röltum yfir á KFC.
Loksins var kominn sunnudagur eftir langa bið! Ferðinni var haldið útá flugvöll og beint yfir til Cancún. Þegar við komum til Cancún tókum við reyndar beint rútu til Playa de Carmen sem er allveg eins og Cancún nema betra! Finnst mér allvegana haha..


Þegar við komum fórum við með töskurnar uppá hótel , sem var viðbjóðslegt en á aðalgötunni það bætti fyrir. Við fórum beint að fá okkur að borða, deyja úr hungri og ekki búin að borða neitt allan daginn. Ég, Nicole og Lárus fórum á ítalskan veitingarstað og fékk ég í fyrsta sinn í Mexico lasagna og röltum svo um bæinn og fórum snemma að sofa enda dauð úr þreytu.
Morguninn eftir var farið í garð sem heitir Xlah, þar fórum við og sáum allskonar dýr, hlaðborð, strönd, blár sjór, snorkla og meira finerí ... Æðislegt að komast í svona frí
Um kvöldið var svo rosalega flott show í 2 klukkutíma með týpískum mexicönskum dönsum sem var rosalega skemmtilegt en mætti hafa verið í 1 klst ekki 2.
Daginn eftir var svo planið að fara í garð sem heitir xplor en hafði ringt um nóttina þannig garðurinn var of hættulegur eða eitthvað í þá áttina þannig við tókum bát á aðra eyju og fórum að snorkla. Þarna voru fiskarnir í þúsundum í kringum okkar engin smá sýn. Við vorum orðin svo rosalega brend þannig við fórum aftur á playa de carmen, fengum okkur að borða og röltuðum um aðalgötuna. Þessi staður er rosalega skemmtilegur og er hann með svolítinn spánargír yfir sig, lítið og krúttlegt.
Seinasta daginn okkar á Playa de Carmen var planið að fara á ströndina en ætluðum við nú ekki að skaðbrenna þannig við tókum röltið eina ferðina enn og ég fór á ströndina meðan Lárus og Nicole fengu sér  að borða. Þeir sem þekkja mig best vita hvað ég ELSKA sólbað...
Næsta á dagskrá var 5 tíma rútúferð til Mérida, ég hefði nú allveg verið til í að vera bara á ströndinni því þetta var þriðja skiptið mitt í Mérída. Við komum um kvöldið og hittum þar ítalska stelpu og norskan strák og fórum út að borða með þeim og fórum svo heim til ítölsku stelpurnar og fórum fullt af krökkum í garð að spila gítar og spjalla en það kom demba og ekkert verið að spara með dropana þannig við tókum leigubíl heim og fórum að sofa. Um morguninn fórum við svo að sjá píramídana og tókum fullt af myndum með þeim en held það hefði verið fínt að sleppa því. Þegar við komum heim fór ég og Nicole ( ítalska vinkona mín ) í mallið að kíkja í búðir en þar sem ég er mesti shopaholic í heimi og allveg blönk verslaði ég ekkert. Sorgardagur, um kvöldið fórum við svo á salsabar og dönsuðum og skemmtum okkur fram á nótt... Þá var kominn föstudagur og heimkomudagur. Við gerðum ekkert sérstakt á föstudeginum bara um kvöldið fórum við í rútuna í 15 klst.. Skil ekki hugsunarháttinn í þessu fólki, kostar það sama að taka flugvél en nei þau ákvaða að kaupa rútumiða.. Ruglað lið
En næstu helgi er svo enn annað ferðalagið og vonandi verður það skemmtilegt. Þessi ferð var rosalega skemmtileg í alla staði og vonandi gengur allt vel sem eftir er! No time to waste






Tilfingarrússíbaninn mismunandi eftir manneksjum já




ótrúlegt hvað mexicönum dettur í hug, setja kirkjugarð í miðjum skemmtigarð


Þangað til næst xx