Síðasta bloggið var held ég í febrúar en samt finnst mér eins og það hafi verið í gær
Núna eru ekki nema 56 dagar þangað til ég kem heim en það gera 8 vikur sirkabát
Þegar ég ákvað að fara sem skiptinemi þá var ekkert snúið til baka, á kynningarnámskeiðinu í sumar þá var talað um tilfingarússíbana sem ég hélt að ég myndi aldrei ganga í gegnum því að ég taldi mig ekki náin Íslandi og hélt að þetta yrði ekkert mál því mér finnst Ísland hvort sem er ekkert skemmtilegt land til að búa á, en þegar ég kom út, grenjaði ég og grenjaði í marga daga og hætti ekki.
Þetta er búið að vera erfiðasta lífsreynsla sem ég hef upplifað, ég hefði aldrei getað ýmindað mér að það væri svona erfitt að venjast öðrum venjum og annari menningu þar sem það getur farið í manns fínustu hvernig aðrir hugsa. Það er ótrúlega skrítið ef maður pælir í því að aðeins 10 tímum í flugvél getur verið svo allt annar heimur, fátæktin, maturinn, göturnar og fólkið. Þegar allir þessir þættir ganga í eitt er Ísland gjörólíkt Mexico í alla staði og að fara að búa í eitthverju sem maður er ekki vanur reynir virkilega á en eftir átta mánuði hefur maður vennst öllu og þetta er annað líf mans. Ég man ennþá eftir hlutunum sem mér fannst stórskrítnir þegar ég kom hingað út en núna eru þeir í daglegu rútínunni þinni eins og ekkert annað hafi nokkur tíman verið gert, en nóg um það.
Seinustu vikur hafa verið frekar tómlegar, skólin kláraðist í seinustu viku og helltist vatn yfir tölvuna mína þannig ég var tölvulaus í viku sem var mjög skrítið þar sem ég er óvenjulega háð tölvunni minni. Ég mun núna vera í sumarfríi í 2 mánuði áður en ég kem heim og hef ekki hugmynd hvað ég ætla að gera af mér þar sem það er eiginlega of heitt til að fara út á daginn. Ég verð alltaf stressaðari og stressaðari að fara heim, hvernig ég á að koma 1 ári ofaní eina ferðatösku. En ég held ég sleppi nú bara að taka með mér fötin sem ég á og kem með fulla tösku af mexicönskum mat ( ef það verður pláss þar að segja ).
En hérna koma nokkrar myndir þar sem mér finnst myndir alltaf lýsa hlutunum mun betur
Spring break á ströndinni
Rosa gott!
Alltaf gaman á kvöldin!
Held að bagg sé ekki beint fyrir ítala
Fórum á american football leik sem var það leiðilegasta sem ég hef gert
Opnun á nýjum skemmtistað
Allt útí mexicönum
Fór með hana til tannlæknis þar sem vinur okkar er tannlæknir þá tók hann skemmt frítt, við reddum okur alltaf réttu samböndunum í Mex..
Ég var boðin um að fara í myndatöku fyrir eitthverja hárgreiðlsustofu og endaði máluð eins og hóra og aldrei liðið jafn vandræðalega með bleikan augnskugga um öll augun.. Fékk að vera mexíkönsk skvísa í einn dag.
Svo fínt stundum að láta sólina skína á sig
Miðbærinn í Tuxtla
Skelltum okkur í kuldann til Sancristobal eina dótt og fengum þetta fína hótelherbergi á 1500 krónur á manninn sem vanalega átti að kosta 10 þúsund.. Alltaf að redda okkur samböndum
Við redduðum okkur á leiðinni í rútunni að slétta á okkur hárið, við erum útlendingar við megum allt
Það var haldið AFS kvöld þar sem við áttum að matreiða disk frá okkar landi og vanalega þá veit ég ekkert hvað ég á að útbúa þannig ég skar niður grænmeti og sósu voða basic haha
En annars eru dagarnir nokkuð rólegir, sofið út og kíkt út á kvöldin en þangað til næst
xx Brynja





















