Wednesday, August 29, 2012

Fyrir ykkur frekjurnar tók ég nokkrar myndir

 Litla sætasta prinsessan


Valentina dúlla með sætasta voffann

 Já svona er víst Mexikanskur matur í Mexico!, og salsað hér er grænt... það kom mér mjög á óvart


Herbergið okkar Alice


Sundlaug hverfsins.. very nice


út að borða :)


Fína stundartaflan!
Thats it! tek meiri myndir bráðum :) Þetta menningarsjokk er sko allveg svakaleg.. Allir ferðast hér sem eiga ekki bíla á pallbílnum í búrum eða í svona litlum sendiferðabílnum sem er bara troðið fólki inní og umferðin er klikkuð og göturnar ókeyranlegar liggur við, og  fullt af lausum hundum og sá dauðann hund á götunni í dag.. það var rosalega spes!! Þetta er klárlega andstæðan við ísland! Og í öllum skólanum er bara einn með ekki brún augu og svo ég! svakalega spes... :)

Tuesday, August 28, 2012

Fyrstu dagarnir

Núna er ég búin að vera 3 daga í Tuxtla og þegar við flugum frá mexico city til Tuxtla kom fjölskyldan að sækja mig á flugvöllinn og ég vissi náttrúlega ekkert hvernig fjölskyldu ég myndi fá en þarna beið mín yndisleg fjölskylda, 3 stelpur , 9 ára, 11 ára og 17 ára sem ég náði ekki allveg hvað heita en þessi 17 ára heitir allvegana Alice, og mamma og pabbi. Við keyrðum heim frá flugvöllinum og þau voru að kenna mér spænsku alla leiðina sem ég var ekki beint að nenna þar sem ég var mjög þreytt, svo fórum við í mallið og ég vissi ekki að þetta væri kvöldmatartími þannig ég vildi ekkert að borða og þau fengu sér kvöldmat. Svo keyrðum við heim og komum að húsinu og i hverfinu er viðbjóoooððsleg lykt stundum útaf eitthverju kjúklingabúi, við komum inn og þá er ekkert herbergi fyrir mig né rúmm... En ég skipti um föt og við keyrðum í annan bæ til að fara hitta fjölskylduna hjá pabbanu, þau kunnu enga ensku þannig ég sat þarna eins og hálviti meðan allir störðu á augun mín útaf engin hérna er með græn augu en svo hættu þau ekki að spurja hvort ég  væri þreytt þannig við keyrðum heim og ég þurfti að sofa með stelpunni í hjónaherberginu útaf pabbinn var að vinna, hann er læknir og hún er hjúkka en ég fatta ekki allveg ég sé þau aldrei vinna. Við þurfum að vakna kl 5 til að fara í skólann og þá hitti ég hina skiptinema, ég þakka fyrir að ég sé ekki ein að ganga í gegnum þetta. En við fengum svona tour um skólann og svo fórum við í tíma. Sem betur fer var fyrsti tíminn ensku tími og ég skildi allt í honum en allir voru að stara og stara og svo komu eitthverjir tímar sem ég skildi ekkert í en ég dottaði bara þarna sitjandi og 2 stelpur spurðu hvort ég vildi koma á svona american football æfingu með þeim haha... Sjáiði mér fyrir ykkur að spila amerískan fótbolta neeei!! en ég sagði já útaf það var alltaf verið að segja manni að segja já við öllu:). Svo þegar skólinn var búinn fór ég heim og svaf thank god og bauð Alice mér að koma með sér í enskutíma og ég sagði bara já því ég nennti ekki að hanga ein heima með fjölskyldunni og maður þarf ekki að gera NEITT hérna, það er bara þjónað manni hægri vinstri en svo fórum við í afmæli hjá eitthverjum frænda sem ég fekk looooksins netsamband í símanum þar sem að það virkaði ekki heima fyrenn núna en svo fór ég að sofa og ég svaf í rúmminu hja stelpunni meðan hún svaf á gólfinu... Frekar óþægilegt  en svo vaknaði ég í morgun og það var ekki skóli heldur eitthver kynning þar sem eg sat í 3 tima sofandi en svo fórum við í bankann og það er ekki hægt að skipta dollurum grate! Svaka jákvætt blogg í gangi hérna ennn svo fórum við að fá tacos og svo heim ! Það eru allir hérna rosalega opnir og allir kysssast hæ og það er alltaf eitthver að leiða mann og það er mjög erfitt að hafa samskipti þar sem þau tala mjööög vonda ensku og sumir bara enga en vonanndi verður þetta aðeins skárra þegar ég læri spænsku og ef mér skilst rétt er ég að fara í spænskutíma á föstudaginn held ég ! Maður flýtur bara með öllum þar sem ég veit aldrei hvert ég er að fara ! Líka hinir skiptinemarnir eru æði , þegar við vorum á kynninguni í dag var ein stelpan farin að gráta og ég skildi hana svo óendalega með ég væri hágrenjandi ef að ég væri ein eða ekki alltaf með eitthverjum og önnur stelpan var ika að segja mér að hún hágrét í gær en hún er með sérherbergi heppiin! enn þangað til næst....

Saturday, August 25, 2012

Ferðalagið langa

Við byrjuðum á því að fljúga til New York sem gekk mjög vel og fengum að sitja í svona comfort sætum og fengum þá allt frítt í fluginu :)... Þegar við lentum í New York áttum við að skipta um flugvöll en við fundum ekki lest sem fór á okkar flugvöll þannig við löbbuðum útum allan flugvöllinn að leita að lestinni en enginn fór á okkar flugvöll og allir sem við spurðum um leiðbeningar gáfu okkur vitlausar, allgjör æði þannig við enduðum með að labba sem tók ekki nema 5 mínútur reyndar en engum datt í hug að segja okkur að gera það en allvegana þá fórum við í flugið og áttum að taka rútu aftur á hinn flugvöllinn því að geitið okkar var víst þar... æðislegt allveg hreint.. Við lentum svo í Mexico city og þá var bara enginn kominn til að sækja okkur þannig við biðum og biðum og enginn kom þannig við ákvöddum að hringja í AFS neyðarsímann í mexico en þá virkaði ekki síminn og virkaði ekki að hringja þannig við hringdum til íslands en svaraði enginn þar þannig við fundum okkur konu til að þýða fyrir okkur úr símanum og loksins eftir 2 tíma bið kom maður að sækja okkur og fór með okkur á hinn flugvöllinn þar sem við hittum hina skiptinemana og þar voru skiptinemar frá Japan sem voru óðir og vildu taka myndir og svona og voru í sjokki hvað Lárus var stór haha !! Þá tókum við rútu í 2 tima í eitthvern bæ þar sem Arrival campið var en við fórum beint að sofa og ég fekk sér herbergi með stóru rúmmi og baðherbergi, sjaldan verið jafn glöð að sjá rúm! 
Um morguninn var morgunmatur og auðvitað vissi ég ekki hvenær hann byrjaði og mætti sein, enn í morgunmat fengum við djúpsteikt tacos með osti og sterkustu salsasósu sem ég hef séð og þær eru sko sannarlega ekki eins og á íslandi þessi var svona appelsínugul með kornum í og þetta var mild en þetta brann tunguna allgjörlega og svo voru egg og brauð. Þegar morgunmaturinn var búinn var búið að skipta okkur í hópa þar sem krakkarnir úr sömu borgunum voru saman og fórum í allskonar kynningar og leiki og verið að fræða okkur um Mexikanska menningu :) Svo kom hádegismatur og maður var allveg að deyja úr þreytu en þá var svona aðalmáltíðin eins og kvöldmatur á íslandi og svo fórum við aftur í eitthverjar kynningar og svo kom kvöldmatur og það var ekkert nema salat, baunir og pasta í kvöldmat bara svona snarl og ég borðaði 3 salatdiska með bara káli og tómötum og svo fengum við smá pásu og svo var talent show og ég komst að því að það eru allir bara sjúklega opnir sem koma ekki frá íslandi þar sem allir voru að dansa og syngja enn ég og lárus létum alla segja ,,Eyjafjallajökull" sem gekk betur en við héldum, greinilega ekkert svakalega hæfileikarík en í fyrramálið fer ég í flug til Tuxtla  þar sem ég hitti fjölskylduna mína sem ég veit ekkert um þar sem ekki einu sinni AFS í mexico er með upplýsingar um hana...  En vonum það besta :)

Wednesday, August 22, 2012

Styttist í þetta!

Jæja þá eru góður einn dagur og 11 klukkutímar í þetta ævilanga ferðalag til Mexico! Ég er allveg að verða búin að pakka ennn er víst heimilislaus eins og er þar sem fjölskyldan mín hætti við að fá skiptinema skilst mér frá góða félaga mínum í AFS í bænum mínum í Mexico ennnnn þetta reddast vonandi... Ég skrifa svo meir þegar ég er komin út og já bærinn minn heitir víst Tuxtla og mjög neðanlega í Mexico!