Um morguninn var morgunmatur og auðvitað vissi ég ekki hvenær hann byrjaði og mætti sein, enn í morgunmat fengum við djúpsteikt tacos með osti og sterkustu salsasósu sem ég hef séð og þær eru sko sannarlega ekki eins og á íslandi þessi var svona appelsínugul með kornum í og þetta var mild en þetta brann tunguna allgjörlega og svo voru egg og brauð. Þegar morgunmaturinn var búinn var búið að skipta okkur í hópa þar sem krakkarnir úr sömu borgunum voru saman og fórum í allskonar kynningar og leiki og verið að fræða okkur um Mexikanska menningu :) Svo kom hádegismatur og maður var allveg að deyja úr þreytu en þá var svona aðalmáltíðin eins og kvöldmatur á íslandi og svo fórum við aftur í eitthverjar kynningar og svo kom kvöldmatur og það var ekkert nema salat, baunir og pasta í kvöldmat bara svona snarl og ég borðaði 3 salatdiska með bara káli og tómötum og svo fengum við smá pásu og svo var talent show og ég komst að því að það eru allir bara sjúklega opnir sem koma ekki frá íslandi þar sem allir voru að dansa og syngja enn ég og lárus létum alla segja ,,Eyjafjallajökull" sem gekk betur en við héldum, greinilega ekkert svakalega hæfileikarík en í fyrramálið fer ég í flug til Tuxtla þar sem ég hitti fjölskylduna mína sem ég veit ekkert um þar sem ekki einu sinni AFS í mexico er með upplýsingar um hana... En vonum það besta :)
Saturday, August 25, 2012
Ferðalagið langa
Við byrjuðum á því að fljúga til New York sem gekk mjög vel og fengum að sitja í svona comfort sætum og fengum þá allt frítt í fluginu :)... Þegar við lentum í New York áttum við að skipta um flugvöll en við fundum ekki lest sem fór á okkar flugvöll þannig við löbbuðum útum allan flugvöllinn að leita að lestinni en enginn fór á okkar flugvöll og allir sem við spurðum um leiðbeningar gáfu okkur vitlausar, allgjör æði þannig við enduðum með að labba sem tók ekki nema 5 mínútur reyndar en engum datt í hug að segja okkur að gera það en allvegana þá fórum við í flugið og áttum að taka rútu aftur á hinn flugvöllinn því að geitið okkar var víst þar... æðislegt allveg hreint.. Við lentum svo í Mexico city og þá var bara enginn kominn til að sækja okkur þannig við biðum og biðum og enginn kom þannig við ákvöddum að hringja í AFS neyðarsímann í mexico en þá virkaði ekki síminn og virkaði ekki að hringja þannig við hringdum til íslands en svaraði enginn þar þannig við fundum okkur konu til að þýða fyrir okkur úr símanum og loksins eftir 2 tíma bið kom maður að sækja okkur og fór með okkur á hinn flugvöllinn þar sem við hittum hina skiptinemana og þar voru skiptinemar frá Japan sem voru óðir og vildu taka myndir og svona og voru í sjokki hvað Lárus var stór haha !! Þá tókum við rútu í 2 tima í eitthvern bæ þar sem Arrival campið var en við fórum beint að sofa og ég fekk sér herbergi með stóru rúmmi og baðherbergi, sjaldan verið jafn glöð að sjá rúm!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment