Sunday, October 28, 2012

Smá sunnudags

Seinasta vika var ósköp venjuleg eins og flestar eru en á hverjum morgni vakna ég kl 5, snooza til 6 tek mig hálftím í að gera mig til og borða ( reyna fá eins mikinn svefn og mögulega hægt er) og labba út og tek skólarútuna 2 min frá húsinu mínu kl hálf 7 á morgnanna.. Skólinn er svo ósköp venjulegur fyrir utan hvað það er erfitt að vakna svona snemma. Skólinn byrjar kl 7 og er til 2 á daginn, hver tími er 50 min og er alltaf 10 mín pása milli hvers tíma og enginn hádegismatur. Eftir skóla tek ég svo rútuna heim og þá er "hádegismatur" kl 3 og svo fer ég annaðhvort í ræktina, sef eða hitti krakkana. Ég er svo í einkaspænskutímum 2 svar í viku og þá kemur kona heim til mín og kennir mér spænsku, vikan mín er oftast svona en svo fer ég og systir mín oft út með vinum hennar á kvöldin einnig sem er mikið skárra þar sem þau eru eldri og eru með venjulegann þroska.
Þessi helgi var einnig frekar ómerkileg eins og seinasta en á föstudaginn var ég í spænskutíma frá 7-9 og eftir spænksutímann kom vinkona mín til mín og við og systir mín fórum út að borða og höfðum svo kosy stelpukvöld. Á laugardeginum lituðum við á mér hárið og klipptum það, 10 cm styttra og svart... Ekki beint það sem ég óskaði eftir en vonandi dofnar liturinn og hárið síkkar haha.. En eftir litunina og klippinguna fórum við út að borða aftur á ítalskan pítsa stað sem var ágætur og fórum svo í mallið til að fá okkur ís en fundum ekki uppáhalds ísinn okkar þannig við fórum. Á leiðinni útúr mollinum var klikkað mikil umferð og hringir þá mamma mín í okkur : HVAR ERUÐI?? - þá var víst rán í búðinni sem við fórum í og 3 drepnir eða eitthvað álíka, veit ekki nákvæmlega smáatriðin en þetta tengdist víst eitthverju dópi.. Heppnin var með manni þarna og maður þarf sannarlega að vera varkár hérna úti. En þetta var upplifun fyrir sig. Svo fórum við í kirkjuna á laugardagskvöldi.. Já ég í kirkju á laugardagskvöldi í  2 klst frá 6-8, og var spilað rokktónlist í kirkjunni, menningin hérna er svo rosalega ólýkt og alltaf er verið að koma manni á óvart með nýjum skrítnum hlutum. En ég fer í kirkju alltaf á laugardagskvöldum , sunnudagsmorgnum frá 10-12 og aftur frá 18-20.. Meira ruglið ég perónulega sé ekki pointið í því að fara í kirkju afhverju getur maður ekki bara beðið heima hjá sér. En fjölskyldan mín er kristintrú en kristintrú hérna úti er allt öðruvísi en á íslandi. Ef þú ert kristintrúaður trúiru á Jesus og guð eins og allstaðar í heiminum en það er enginn kross eins og á íslandi og fólk mætir of seint í kirkju eða mætir bara í korter og fer svo rosalega sérstakt.. En þegar þú ert kaþólskur trúiru á maríu mey og þau eru með kross með eitthverju brauði inní og trúa þau á þetta heilaga brauð. Get nú ekki sagt að ég sé þetta en það er rosalega sterkt kirkjusamband hérna og þú átt að gera allskonar skrítna hluti fyrir utan kirkjuna, t.d. setja vekjaraklukkuna þína á lag sem tengist guð, senda skilaboð til vina þinna með guðlegum skilaboðum o.fl rugl haha!
En  eftir kirkjuna fórum við heim og náðum í dótið okkar og var planið að fara útúr bænum til pabba systur minnar, við tókum leigubíl. Þegar við komum til hans grilluðum við og sátum úti allt kvöldið með þeim og duttum við í þann gír að plana ferðir.. Og núna erum við búin að kaupa miða til Cancún fyrir fimmtudaginn og gæti ég ekki verið spenntari!! að fara frá fimmtudagsnóttu í 13 tíma rútuferð og vera yfir helgina , föstudag, laugardag og sunnudag og keyra svo á sunnudagsnóttina aftur til baka og sækja bróðir minn sem er að flytja hingað heim. Alltaf eitthvað nýttt! En hann er 22 ára og mun búa hjá okkur. En næsta blog verður ábyggilega mjög skemmtilegt með ferðasögunni þangað til næst xx



Monday, October 15, 2012

52 dagar

52 dagar komnir í mexico og mér líður eins og ég hafi búið hérna alla æfi, er búin að vera hjá fjölskyldunni minni í 2 og hálfa viku og allt gengur rosalega vel. Þær eru yndislegar í alla staði og þvílíkur munur að vera með sér herbergi, þegar maður fer svona út, metur maður alla hluti svo mikið meir!
Það er svolítið langt síðan ég gerði blogg en það er bara útaf ég er sú allra latasta eins og þið þekkið!
En allavegana fór ég seinustu helgi til San Cristobal sem er kalda borg með bestu vinkonu minni hérna og systur minni og rútuferðin kostaði 300 kall og rosa fínt hótel á 1500 kall, þetta er rugl verðið á hlutum hérna. Við fórum á Föstudeginum í garð hérna nokkrir skiptinemarnir og fengum okkur að borða saman og svo ætlaði ég að fara til vinkonu minnar en nei þá átti ég að vera komin heim kl 10 þannig ekkert varð úr því... Ég er ekki lengur 17 ára hérna ég er 12 ára en þrátt fyrir það trúir enginn að ég sé 17 þar sem allir lýta svo barnalega út, var t.d. spurð hvað eg væri gömul um daginn og þá hélt gaurinn að ég væri 25 ára, róum okkur aðeins hahaha.. En á laugardags eftirmiðdag fórum við í hina borgina og fengum okkur bestu pítsuna og gerðum allskonar skemmtilegt sem maður gerir þegar maður er einn í annari borg. En það var rosalega skemmtilegt og kynntumst við fullt af skemmtilegu fólki í leiðinni.

San Cristobal

Reykja vatnspípu

Vikuna eftir var rosalega eðlileg eins og alltaf fór ég í spænskutíma og á fimmtudaginn gerði ég kynningu í 6 mínútúr á spænsku vibbíj! Meðal annars er búið að hóta mér að senda mig heim ef tala ekki reiprennandi spænsku eftir 2 viku, aldrei að fara gerast en svona gera mexicanar, hóta og hóta og ljúga... Svaka stuð haha..  En núna eru spænskutímarnir loksins búnir og í þessari viku byrja ég í einkaspænskutímum því að að þeirra sögn er ég rosalega lengi að ná spænskunni samt sem áður talar bara ein vinkona mín ensku og ég næ nú að tala við vini mína, væri gaman að sjá þau reyna læra íslensku haha..

Á föstudaginn fór ég eftir skóla til vinkonu minnar í höllina hennar, og hjá henni þarf hún ekki einu sinni að kveikja ljósin sjálf haha það er bara þjónað hægri vinstri, meira bullið. En eftir það fór ég í spænskupróf og um kvöldið fórum við á discotec sem var rosa stuð, maður borgar 1000 kr fyrir frítt áfengi allt kvöldið, ókeypis liggur við! En ég gisti hjá vinkonu minni og vöknuðum eld hressar kl 8 um morguninn og fórum upp í sveit til vina okkar og fórum að synda í eitthverjari á, borðuðum þennan yndislega mexicanska mat sem að ákvað að skemma líkamann minn og sem eftir var af ferðinni svaf ég og er ennþá fárveik í maganum... Ekki koma til mexico og borða chili! Mæli eindregið ekki með því !

Þegar ég hugsa um þegar ég kom hingað er það skrítnasta sem ég geri, að hugsa um ísland er ennþá skrítnara og ótrúlegt en satt er engin heimþrá né sakn á ísland komið eftir heilar 7 vikur sem betur fer! Er ekki frá því að ég sé meira hamingjusamari hér en heima þrátt fyrir margar flækjur hérna úti.

Ætla koma með smá skrítnar staðreyndir um Mexico sem komu mér á óvart
- Allir eru alltaf í skóm, inni og úti
- Það er eðlilegast í heimi að vera í heimsókn hjá random fólki og fá að leggja sig í rúmminu þeirra
- Ef að þú kyssir 2 stráka ertu hóra
- Allir foreldrar sem ég þekki lýta á áfengi sem djövulinn
- Ef þú kemur 2 mín of seint í tíma máttu ekki koma inn í stofuna
- Það eru nánast enginn grannur hérna
- Allir eru litlir og hér er ég risi, ég af öllum ótrúlegt en satt
- Það eru allir sjúklega opnir með ótrúlegustu hluti, t.d. er labbað upp að manni í skólanum og spurt, langar þer í þennan sem kærasta þinn, viltu sofa hjá þessum?, ertu hrifinn af þessum? Bara fyrir framan alla.. Ekki vandamálið hérna
- Það er enginn hádegismatur í skólanum bara 10 mín pása milli hvers einasta tíma
- Þegar þú ert búin að þekkja manneskju í 5 mínútur segist hún elska þig
- Þú kyssir alltaf manneksju hæ á kynnina þó að þú þekkir hana ekki og líka bæ, annars ertu dóni
- Ef þú kemur ekki með eitthvert eða ert upptekinn fara allir í fýlu útí þíg
- Þau nota majones á brauð og ég hef aldrei séð smjör hérna
- Mjólkin rennur út eftir 2 ár
- Allt er ódýrt
- Mamma mín sá stelpu vera rænda til að vera hóra í götunni minni, no worries
- Skjaldbökur eru eldaðar og borðaðar hér

Og já engar myndir seinstu 2 vikur, en fékk nýja myndavél í dag!
Núna skal ég taka 10000 myndir!! Af öllu skrítna!

Okey allavegana leiðilegasta blogg hingað til! Lofa gera betur næst
Adios