Það er svolítið langt síðan ég gerði blogg en það er bara útaf ég er sú allra latasta eins og þið þekkið!
En allavegana fór ég seinustu helgi til San Cristobal sem er kalda borg með bestu vinkonu minni hérna og systur minni og rútuferðin kostaði 300 kall og rosa fínt hótel á 1500 kall, þetta er rugl verðið á hlutum hérna. Við fórum á Föstudeginum í garð hérna nokkrir skiptinemarnir og fengum okkur að borða saman og svo ætlaði ég að fara til vinkonu minnar en nei þá átti ég að vera komin heim kl 10 þannig ekkert varð úr því... Ég er ekki lengur 17 ára hérna ég er 12 ára en þrátt fyrir það trúir enginn að ég sé 17 þar sem allir lýta svo barnalega út, var t.d. spurð hvað eg væri gömul um daginn og þá hélt gaurinn að ég væri 25 ára, róum okkur aðeins hahaha.. En á laugardags eftirmiðdag fórum við í hina borgina og fengum okkur bestu pítsuna og gerðum allskonar skemmtilegt sem maður gerir þegar maður er einn í annari borg. En það var rosalega skemmtilegt og kynntumst við fullt af skemmtilegu fólki í leiðinni.
San Cristobal
Reykja vatnspípu
Vikuna eftir var rosalega eðlileg eins og alltaf fór ég í spænskutíma og á fimmtudaginn gerði ég kynningu í 6 mínútúr á spænsku vibbíj! Meðal annars er búið að hóta mér að senda mig heim ef tala ekki reiprennandi spænsku eftir 2 viku, aldrei að fara gerast en svona gera mexicanar, hóta og hóta og ljúga... Svaka stuð haha.. En núna eru spænskutímarnir loksins búnir og í þessari viku byrja ég í einkaspænskutímum því að að þeirra sögn er ég rosalega lengi að ná spænskunni samt sem áður talar bara ein vinkona mín ensku og ég næ nú að tala við vini mína, væri gaman að sjá þau reyna læra íslensku haha..
Á föstudaginn fór ég eftir skóla til vinkonu minnar í höllina hennar, og hjá henni þarf hún ekki einu sinni að kveikja ljósin sjálf haha það er bara þjónað hægri vinstri, meira bullið. En eftir það fór ég í spænskupróf og um kvöldið fórum við á discotec sem var rosa stuð, maður borgar 1000 kr fyrir frítt áfengi allt kvöldið, ókeypis liggur við! En ég gisti hjá vinkonu minni og vöknuðum eld hressar kl 8 um morguninn og fórum upp í sveit til vina okkar og fórum að synda í eitthverjari á, borðuðum þennan yndislega mexicanska mat sem að ákvað að skemma líkamann minn og sem eftir var af ferðinni svaf ég og er ennþá fárveik í maganum... Ekki koma til mexico og borða chili! Mæli eindregið ekki með því !
Þegar ég hugsa um þegar ég kom hingað er það skrítnasta sem ég geri, að hugsa um ísland er ennþá skrítnara og ótrúlegt en satt er engin heimþrá né sakn á ísland komið eftir heilar 7 vikur sem betur fer! Er ekki frá því að ég sé meira hamingjusamari hér en heima þrátt fyrir margar flækjur hérna úti.
Ætla koma með smá skrítnar staðreyndir um Mexico sem komu mér á óvart
- Allir eru alltaf í skóm, inni og úti
- Það er eðlilegast í heimi að vera í heimsókn hjá random fólki og fá að leggja sig í rúmminu þeirra
- Ef að þú kyssir 2 stráka ertu hóra
- Allir foreldrar sem ég þekki lýta á áfengi sem djövulinn
- Ef þú kemur 2 mín of seint í tíma máttu ekki koma inn í stofuna
- Það eru nánast enginn grannur hérna
- Allir eru litlir og hér er ég risi, ég af öllum ótrúlegt en satt
- Það eru allir sjúklega opnir með ótrúlegustu hluti, t.d. er labbað upp að manni í skólanum og spurt, langar þer í þennan sem kærasta þinn, viltu sofa hjá þessum?, ertu hrifinn af þessum? Bara fyrir framan alla.. Ekki vandamálið hérna
- Það er enginn hádegismatur í skólanum bara 10 mín pása milli hvers einasta tíma
- Þegar þú ert búin að þekkja manneskju í 5 mínútur segist hún elska þig
- Þú kyssir alltaf manneksju hæ á kynnina þó að þú þekkir hana ekki og líka bæ, annars ertu dóni
- Ef þú kemur ekki með eitthvert eða ert upptekinn fara allir í fýlu útí þíg
- Þau nota majones á brauð og ég hef aldrei séð smjör hérna
- Mjólkin rennur út eftir 2 ár
- Allt er ódýrt
- Mamma mín sá stelpu vera rænda til að vera hóra í götunni minni, no worries
- Skjaldbökur eru eldaðar og borðaðar hér
Og já engar myndir seinstu 2 vikur, en fékk nýja myndavél í dag!
Núna skal ég taka 10000 myndir!! Af öllu skrítna!
Okey allavegana leiðilegasta blogg hingað til! Lofa gera betur næst
Adios
No comments:
Post a Comment