Á miðvikudaginn var bara ósköp venjulegur dagur nema ég verð að segja ykkur smá frá skólanum þar sem ekkert gerðist merkilega á miðvikudaginn, á Íslandi kvörtum við yfir öllu en hérna er bara ekkert í boði, stólarnir eru svona litlir tréstólar og allir krakkarnir eru með límmiðabækur, liti og allt föndurdót og eftir hvert einasta verkefni þar kennarinn að kvitta og mér líður stundum eins og ég sé komin í 6 bekk aftur haha. En um kvöldið fór ég með systur minni og vini hennar í bíó og fórum svo út að borða.
Á fimmtudaginn ákvað ég að vera með þennan skemmtilega magaverk og komst að því í dag að ég er með orm í maganum sem lætur mig verða svanga og illt í maganum og líkaminn miskilur orminn þegar hann er að meiða mig heldur líkaminn minn að ég sé svöng þannig ég er að borða óeðlilega mikið en á morgun fer ég til læknisins og fæ annaðhvort pillur eða sprautumeðferð gegn þessu. En á föstudaginn voru allir að knúsa mig til hamingju með afmælið þó að ég ætti ekki einu sinni afmæli fyrenn á laugardeginum haha þar sem þau elska afmæli svo mikið en það var enginn skóli heldur einungis ferð á safnið sem er það allra leiðilegasta sem ég hef gert liggur við en byrjuðum á því að labba í gegnum eitthvern skóg og skrifa hvert einasta spjald niður í 2 klukkutíma og þar sá ég meðal allars stærstu kónguló sem var jafn stór og tarantúla og þau bara ooo sæta konguló. En eftir það fórum við á annað safn í 2 klukkutíma sem var svona sveppasafn og ég var að deyja úr þreytu og aldrei skemmt mér jafn vel haha og eftir það fórum við á annað safn og þá ákvað líkaminn minn að feila og byrjaði ég öll að titra og fá gæsahúð og magaverki allt þessum ormi að kenna greinilega ahhaha sama hversu skrítið það hljómar vissi ég ekki að þetta væri til. En eftir það fór ég heim og lagði mig og svo var AFS fundur heima hjá mér og spjölluðum um allskonar atburði, þurfum að gera sjálfboðaliðavinnu og ætlum við að fara eitthverntíman á ströndina sem er 2 klst í burtu og bjarga skjaldbökum og gista þar rosa spennandi en eftir fundinn fórum við nokkrir krakkar og fengum okkur pítsu á fínasta veitingarstaðnum í Tuxtla eða eitthvað í þá áttina en nei nei versta pítsa og dýrasta sem ég hef smakkað á æfinni.
Á laugardagsmorguninn átti ég loksins afmæli og orðin 17 ára eftir langa bið og langaði ekkert meira en að skella mér til Íslands eina helgi og fá að keyra! Ömurlegt að vera komin með bílpróf og þurfa að bíða í eitt ár eftir að nota það haha! En ég rölti útí búð og keypti mér gúmmelaði og svo var búið að plana svona surprise dag fyrir mig og ég þurfti að vera með svefngrímu og svo komum við á staðinn og þá var systir mín búin að plana partý fyrir mig með sundlauginni og allskonar meðlætum og vorum þar allann daginn og ein stelpan misti myndavelina mína í sundlaugina þannig hún er ónýt æðislegt.En svo gátum við eiginlega ekki meira um kvöldið haha þannig við gistum 4 hérna heima hjá mér og sátum bara úti á svölum að chilla en svo var ég vakin kl 8 á sunnudagsmorgni til að fara í kirkju og keyrðum þangað en þá var þetta bara eins og mötuneyti og fjölskan mín er kristintrúuð en sá trú hér er ekki með kross mjög sértstakt. En þarna eyddum við 3 klukkutímum og fórum svo í lunch en neinei á ekki að vera önnur messa kl 4, hvað er pointið?? Ég bara skil það ekki þannig ég ætla reyna vera að leæra þegar við eigum að vera að fara en held að ég sé búin að segja frá allri þessari viku þannig þangað til næst..
No comments:
Post a Comment