Jæja þá er búið að vera nóg seinustu viku en ég nennti ekki
allveg skólanum þessa vikuna útaf ég var alltaf að fá svona hitaköst og ógleði
en þá fór ég bara 2 daga í skólann í vikunni.
Ég er ekki frá því að spænsku kennarinn hati mig þar sem það
eru 3 stelpur frá ítalíu sem kunna aðeins of góða spænsku og þá kann ég ekkert
við hliðiná þeim en eftir spænskutíma á þriðjudaginn forum við aðeins að rölta
um bæinn að leita að afmælsigjöf fyrir eitthverja stelpu en svo tók ég strætó
heim og það tók ekki nema 2 klukkutíma að fá strætó því að allir voru fullir
það var æðisleg bið í hitanum en ég er ekki frá því að ég sé ekki beint í
uppáhaldi hjá spænskukennaranum þar sem ég kann ekki jafn góða spænsku og
ítölsku stelpurnar og þegar hann spyr mig veit ég aldrei neitt. En sá
skóladagur fór aðalega í það að hjálpa vinkonu minni að skipta um fjölskyldu
þar sem hún býr í rottuholu og lýður ömurlega heima hjá sér en samt er
fjölskyldan svo yndisleg en sem betur fer fekk hún nýja fjölskyldu og mokríka
en hún var byrjuð að venjast því að baða sig úr bala í meigluðu baðherbergi og
fannst mjög skrítð að fá loksins sturtu sem var mjög skrítið að heyra en það er svo mikið rugl í
Suður – Ameríku kerfið og get nú ekki sagt að öllum sé treystandi hérna þannig
maður verður að passa sig rosalega hvað maður segir .
Á föstudaginn var ekkert smá spes dagur, en það var dagurinn
fyrir þjóðhátíðardag Mexicana og var nú meiri veislan í skólanum og allir áttu
að koma með veitingar en ég vissi það ekki haha en eini dagurinn á árinu sem að
maður má sleppa skólabúningum, svo átti vinkona mín Astrid afmæli og var haldið
í hefðina og hent andlitinu hennar í köku og svona! Um morgunininn þegar ég
labbaði inní stofuna voru 2 stelpur að hengja upp fullt af svona post-it miðum
á borð hjá einni stelpunni og ég skildi ekkert hélt að þetta tengdist deginum
eitthvað og svo fer ég bara útur stofunni og svo alltíeinu kemur vinur minn
inni í stofuna með blómvönd og miða sem stóð á á spænsku ,, Viltu vera kærastan
mín? “ og hún sagði auðvitað já og allir klöppuðu og ég var í sjokki í svona sirka
30 mínútur því að mér fannt þetta svo skrítið og allir voru að hlæja að mér því
að eg stóð þarna bara hvað er íii gangi? – þetta var eins og þegar beðið er um
að gifast sér og ekki einu sinni folk á íslandi gengur svona langt þegar það er
verið að biðja um hönd eitthvers haha..
Allvegana fór ég og systir mín í 2 tíma strætóferð útaf við
ætluðum að fara skoða rosa fínt moll og það var svona sirka 40 stiga hiti og
enginn loftræsting og ég hef aldrei verið jafn uppgefin eftir ferðina og rosa
spennt að sjá mollin neinei, er ekki ein búð í þessu molli heldur bara svona
stór matvöruverslun þannig við þurftum að fara alla leið tilbaka og ég nennti
ekki með heim til frænku hennar því að þau tala endalaust þannig ég fór ein í
mollið og verslaði mér smá föt og afmælisgjöf fyrir vinkonu mina og fór svo
heim og talaði við pabba á skype og fór svo á veitingarstað með vinahópnum til
að gera svona ,,surprise” fyrir stelpuna en ég kom auðvitað alltof seint..
Mexicanar ég er að segja ykkur þeir kunna sko ekki á klukku! En það er
allvegana búið að banna okkur að hanga með sjálfboðaliðum AFS sem er nú meira
ruglið þar sem þau eru í skólanum okkar og eru í vinahópnum haha og einn
sjálfboðaliðinn er besti vinur skiptinemans og enginn skilur neitt þannig við
brjótum bara reglurnar og auðvitað komu þau með okkur út að borða.
En það var rosalega gaman og alltíeinu áður en við forum
sagði systir mín mér að taka með mér náttföt því að ég átti að fara gista hjá
vinkonu minni og þeim datt ekki í hug að spurja mig hvort að ég vildi það en
auðvitað vildi ég það haha þannig ég fór heim með henna eftir út að borða og
með bróðir hennar og vin hennar og við vorum hjá þeim að spjalla og ótrúlegt
hvað hún er orðin náin foreldrum sínum og ekki ég! En það er annað hún er
ítölsk þannig hún kann roslaega góða spænsku en það var mjög fínt að fá smá
lúxus og sofa með sæng og mjög hreint heimili svona til tilbreytingar haha !
Daginn eftir ákvöddum við að fara skoða svona fjöll og
fengum leigubíl til að skutla okkur á milli útsýnisstaða en þetta var mjög
virtur staður og þurftum við að borga okkur inn og þar voru sko venjulegir
vegir loksins!
En það var mjög falleg hinsvegar orðið dálítið þreytt eftir
smá að vera sjá alltaf sama og sama útsýnið bara frá öðru sjónarhorni en svo
forum við í Park Marimba þar sem er spilað svona eins og piano með kjuðum og
fengum okkur krap en þá kom demba og við forum í mollið í staðinn en ég var
orðið of þreytt fyrir lífið þannig ég fór heim og lagði mig og hafði svo bara
rólegt um kvöldið!
Á sunnudeginum vöknuðum við og forum í morgunmat og þar
smakkaði ég allra bestu tacos á æfinni vá hvað þær voru góðar haha og forum svo
og skoðuðum eitthverja á og löbbuðum um
við sátum og vorum að borða krap þá kemur kona að mér og segir við mig
hvað ég er falleg og hvort þau megi taka mynd af mér útaf augunum mínum og þetta er ekki í fyrsta skiptið, þetta er
rugl hvað allir eru ástfangir af augunum mínum þar sem þau eru græn og flestir
með brún augu haha, en eftir það fórum svo til þessarar frænku og þær töluðu
endalaust í svona 5 tíma þannig ég fór uppí herbergið hennar eins og ég geri
alltaf þegar ég er í heimsókn og lagði mig haha.. En þá ákvöddum við að fara á
ströndina daginn eftir og kíktum ég og systa út með nokkrum krökkum og litlu
systur mínar hengu utan í bílnum og þetta er svo ótrúlegt hvað ég er bara komin
aftur í 7unda bekk hérna en það vonandi venst eða breytist frekar.
Á mánudeginum lögðum við af stað kl 7 um morguninn til að
fara á ströndina og í hvert skipti sem við forum í gegnum svona öryggisverði
sem gerðist 2 var þurfti ég að loka augunum útaf við gleymdum immigration
spajldinu mínu heima og þeir meiga ekki sjá að ég sé ekki mexicani haha en sem
betur fer svaf ég næstum alla ferðina eins og ég geri best hérna í Mexico að
sofa og komum við á geðveikan stað með 4 sundlaugum og rosa falleg og ég ákvað
að setja ekki á mig sólarvörn þar sem hún var útí bíl og ég nennti ekki að
sækja hana og brann svona skemmtilega í andlitinu og á höndunum en það er held
ég farið núna sem betur fer og svo
akkúrat kl 6 kom hverfilbilur eða eitthvað í þá áttina sem var eimitt
lokunartíminn,en á morgun forum við á ströndina. Fínt að fá smá pásu frá öllu
og slaka á !
Á þriðjudeginum vöknuðum við og ég var bara brenndust í heimi og vorum að fara á ströndina en byrjuðum á því að fá okkur morgunmat í bænum og þau fengu sér þetta að drekka með sem er mesti viðbjóðurinn
En svo hentum við okkur á ströndina ég sama brunarústin alltaf hreint og þurfti að vera á veitinarstað næstum allan tímann útaf eg vildi ekki brenna meira og ég hef ALDREI séð jafn stórar öldur þetta var bara klikkuð og það eðlilegasta hérna úti
En svo fórum við út að borða og ég fékk svo best í heimi að borða



No comments:
Post a Comment