Núna eru 2 vikur liðnar síðan ég kom til fjölskyldunar í Tuxtla og allt gengur rosalega fyrir utan að ég er ekki ennþá með rúm haha... En það er bara smáatriði, búin að komast að því að frelsið hérna er bara alls ekki það sama og á Íslandi, en vissi það nú áður en þetta er samt rugl.. Seinustu helgi kíktum við í eitthvað party og áttum að vera komnar heim kl 11 en það lengdist til 2 sem betur fer og á laugardeginum var bara svona chill dagur og við kiktum í sund líka sem var mjög spes, litlu stelpurnar voru að fara í afmæli og þar áttum við að fara í sund en þegar við komum voru bara fullt af litlum krökkum í sundlauginni og eg skildi ekkert þannig ég og systir min fórum á eitthvern veitingarstað þar sem það var sundlaug fyrir gesti veitingarstaðsins og venjuleg bikení eins og á íslandi er ekki allveg við hæfi hérna þar sem allir fara í sund í fötunum en svo man ég ekki meir hvað gerðist þessa helgi haha... En öll vikan fór í það að vera í skólanum og það var prófavika þannig það var mjög skrautlegt þar sem ég kann roslalega litla spænsku og við byrjuðum í skólanum eftir að þau voru búin að vera í 2 vikur þannig ég held að ég hafi fengið 0 í flestu haha.. En það var alltílag, svo fórum við í spænskutíma eins og vanalega 3var í vikunni í 2 klukkutima og maður er alltaf svo uppgefinn hérna það er ekki hægt að vaka lengi en á miðvikudaginn fórum við í aðra borg sem heitir San Cristobal sem var ótrúlegt, við keyrðum í svona klukkutíma og þetta var eins og að vera komin í annað land þar sem að þar var rigning og kallt allveg eins og á íslandi og þetta var mjög falleg borg og við röltum þarna um í rigningunni og fékk að smakka eitthvað súkkulaði pönnuköku með bönunum og kakó sem var mjög skrítið á bragðið en ég varð veik þarna í borginni og hnerraði á 2 min fresti þannig foreldrar mínir hentu í mig eitthverjum pillum og ég lagaðist sem betur fer en eitt mjög spes líka, þegar við komum fóru þau í skottið og þá var dominos pitsa þar og við fórum í eitthvað moll þarna og þau bíðu í klukkutíma með að borða pítsuna og gátu ekki bara keypt pítsu í mollinu heldur komu með sína eigin og settu kokteilsósu á pítsuna , já það er kokteilsósa í Mexico það vissi ég ekki!!




En svo á föstudaginn var haldið surprise afmæli fyrir einn skiptinemann sem var mjög spes þar sem maður á að taka bita af kökunni og svo er smellt andlitinu mans ofaní kökuna haha og það var eins og það hafi verið að skýra hann þar sem það var settur blómakragi á hann og pabbi stráksins sem átti húsið kom með eitthverja bæn og rugl en það var mjög fínt að chilla aðeins með hinum skipitnemunum og öðrum krökkum úr skólanum.
Með kransinn og kökuna framní sér
Það hefur ekki verið gaman að þrífa eftir þessa veilsu þar sem að það var hent svona dóti yfir mann allann !
En svo um kvöldið sótti mamma mín mig og leyfði mér að fara í party án systur minnar í fyrsta skiptið loksins smá frelsi haha... En á laugardagsmorgninum fékk ég að sofa út í fyrsta skiptið og fórum svo niðri í bæ að versla og ég keypti mér converse skó á ekki meira en 6 þúsund krónur, gallabuxur á þúsund kall og veski á 2 þúsund, allt svo ótrúlega ódýrt hérna þetta er ekki eðlilegt og svo eru ótrúlegustu hlutir dýrir miðað við allt hitt. :)) En þangað til næst :)
No comments:
Post a Comment