Sunday, September 30, 2012

24-30 september! Tíminn flýgur

Eftir að hafa staðið í þessi fjölskylduveseni er ég búin að vera himinlifandi yfir nýju yndislegu fjölskyldunni minni. Á mánudaginn fór ég ekki í skólann vegna þess að ég þurfti að fara í "immigration" og reyna áfram að fá visa og fékk svo að fara heim að sofa og held núna að bráðum fái ég visa haha! Klárlega mesta vesenið og um kvöldið fór ég og systir mín í mat til vinkonu minnar og bróður hennar og fengum þetta ljúfenga ítalska pasta og vorum hjá þeim að spjalla og komst ég að því skemmtilega að fyrverandi systir mín er búin að vera vinna í því að búa til lygasögur um mig og bullið sem kemur uppúr þessu liði, þannig þegar ég mætti í skólann á þriðjudaginn störðu allir á mig eins og í bíómynd eða eins og fyrsta skóladaginn en ég var ekki lengi að leysa úr þeim vanda með því að leiðrétta þetta við alla vini mína og tala við þessa yndislegu dömu en hún auðvitað skildi ekkert neitt... En eftir skóla á þriðjudaginn fór ég og vinkona mín niðrí bæ og fengum okkur ís og röltum um centralið  vegna þess að í þessari viku var frí í spænskutímum þar sem að elskulegi spænskukennarinn tók sér frí og það er enginn smá munur að vera ekki með þessa spænskutíma í vikunni sinni..
Á miðvikudaginn var bara ósköp venjulegur dagur nema ég verð að segja ykkur smá frá skólanum þar sem ekkert gerðist merkilega á miðvikudaginn, á Íslandi kvörtum við yfir öllu en hérna er bara ekkert í boði, stólarnir eru svona litlir tréstólar og allir krakkarnir eru með límmiðabækur, liti og allt föndurdót og eftir hvert einasta verkefni þar kennarinn að kvitta og mér líður stundum eins og ég sé komin í 6 bekk aftur haha. En um kvöldið fór ég með systur minni og vini hennar í bíó og fórum svo út að borða.
Á fimmtudaginn ákvað ég að vera með þennan skemmtilega magaverk og komst að því í dag að ég er með orm í maganum sem lætur mig verða svanga og illt í maganum og líkaminn miskilur orminn þegar hann er að meiða mig heldur líkaminn minn að ég sé svöng þannig ég er að borða óeðlilega mikið en á morgun fer ég til læknisins og fæ annaðhvort pillur eða sprautumeðferð gegn þessu. En á föstudaginn voru allir að knúsa mig til hamingju með afmælið þó að ég ætti ekki einu sinni afmæli fyrenn á laugardeginum haha þar sem þau elska afmæli svo mikið en það var enginn skóli heldur einungis ferð á safnið sem er það allra leiðilegasta sem ég hef gert liggur við en byrjuðum á því að labba í gegnum eitthvern skóg og skrifa hvert einasta spjald niður í 2 klukkutíma og þar sá ég meðal allars stærstu kónguló sem var jafn stór og tarantúla og þau bara ooo sæta konguló. En eftir það fórum við á annað safn í 2 klukkutíma sem var svona sveppasafn og ég var að deyja úr þreytu og aldrei skemmt mér jafn vel haha og eftir það fórum við á annað safn og þá ákvað líkaminn minn að feila og byrjaði ég öll að titra og fá gæsahúð og magaverki allt þessum ormi að kenna greinilega ahhaha sama hversu skrítið það hljómar vissi ég ekki að þetta væri til. En eftir það fór ég heim og lagði mig og svo var AFS fundur heima hjá mér og spjölluðum um allskonar atburði, þurfum að gera sjálfboðaliðavinnu og ætlum við að fara eitthverntíman á ströndina sem er 2 klst í burtu og bjarga skjaldbökum og gista þar rosa spennandi en eftir fundinn fórum við nokkrir krakkar og fengum okkur pítsu á fínasta veitingarstaðnum í Tuxtla eða eitthvað í þá áttina en nei nei versta pítsa og dýrasta sem ég hef smakkað á æfinni. 
Á laugardagsmorguninn átti ég loksins afmæli og orðin 17 ára eftir langa bið og langaði ekkert meira en að skella mér til Íslands eina helgi og fá að keyra! Ömurlegt að vera komin með bílpróf og þurfa að bíða í eitt ár eftir að nota það haha! En ég rölti útí búð og keypti mér gúmmelaði og svo var búið að plana svona surprise dag fyrir mig og ég þurfti að vera með svefngrímu og svo komum við á staðinn og þá var systir mín búin að plana  partý fyrir mig með sundlauginni og allskonar meðlætum og vorum þar allann daginn og ein stelpan misti myndavelina mína í sundlaugina þannig hún er ónýt æðislegt.En  svo gátum við eiginlega ekki meira um kvöldið haha þannig við gistum 4 hérna heima hjá mér og sátum bara úti á svölum að chilla en svo var ég vakin kl 8 á sunnudagsmorgni til að fara í kirkju og keyrðum þangað en þá var þetta bara eins og mötuneyti og fjölskan mín er kristintrúuð en sá trú hér er ekki með kross mjög sértstakt. En þarna eyddum við 3 klukkutímum og fórum svo í lunch en neinei á ekki að vera önnur messa kl 4, hvað er pointið?? Ég bara skil það ekki þannig ég ætla reyna vera að leæra þegar við eigum að vera að fara en held að ég sé búin að segja frá allri þessari viku þannig þangað til næst.. 

Monday, September 24, 2012

Breytingar!


Núna er kominn 24 sepember og það er ekkert smá sem tíminn líður! Það hefur mikið verið í gangi seinustu daga en seinasta miðvikudag fór ég í það að reyna skipta um fjölskyldu en það er ferli sem tekur langann tíma þannig á fimmtudaginn sendi ég bréf og það var nú meira vesenið sem er mjög eðlilegt en á föstudaginn fékk ég það í gegn að á Laugardaginn að fá nýja fjölskyldu útaf ástæðum sem ég held megi ekki segja á netinu haha.. en það var mjög áhugavert ferli en á föstudaginn í skólanum byrjuðu krakkarnir daginn með að koma með sætustu kanínuna í skólann og ég var að klappa henni og alltíeinu bara já við erum að fara drepa hana á eftir í líffræði og ég hef aldrei verið í jafn miklu sjokki! Hélt nú að það væri eitthvað djók en neinei klst sienna heyrði ég öskur og þá var kanínuunginn drepinn og tekið líffærin útúr henna greyið, viðbjóður..


Litla sæta kanínan sem er dáin.. Ég spyr bara hvernig er þetta hægt

 En eftir skóla fór ég heim og lagði mig þar sem ég var að deyja úr hausverk eitthvað sem maður er oft með hérna útaf sólinni og tungumálinu og alltíeinu kom host mamma mín að mér og sagði að við værum að fara borða með bossinum yfir AFS í bænum mínum en greinilega ekki þar sem ég var greinilega að fara út að borða með vinum mínum haha en fengum rosa góða kjúklingavængi og skemmtum okkur vel og svo forum við aftur í kvöldmat kl half 2 um nóttina útaf ég var svo svöng og forum svo heim. Ég var  vakin kl 9 um morguninn útaf ég var að fara í “sólarhrings heimsókn til sjálfboðaliða,, og þarna tók á móti mér æðisleg stelpa sem heitir Paula og mamma hennar Elizabeth og við keyrðum heim og þar sýndu þær mér heimilið mitt nýja og allt svo hreint og fínt loksins. Þær búa allveg niðrí í bæ þannig það er stutt í allt og rosalega gaman að fara út að rölta þar sem þetta er bara miðbærinn. Ég fékk mitt eigið herbergið með hjónarúmi og allt sér en herbergið er eiginlega séríbúð þar sem maður þarf að fara útúr húsinu til að fara í það en það er æði að fá loksins privacy. En útaf Paula átti afmæli forum við í San cristobal köldu borgina og röltum um , fengum okkur ítalska pítsu , forum á safn þar sem voru bara munir af fólkinu sem býr í skóginum mjög áhugavert ótrúlegt en satt haha  og forum svo á kaffihús og fengum okkur köku en þá fékk ég að vita það að ég ætti að vera hjá þeim í 2 vikur þangað til að þau myndu finna ekta fjölskyldu. Ég eyddu laugardagskvöldinu bara að horfa á mynd og kosy vildi ekki vera fara út fyrstu nóttina mina hjá þeim. Við vöknuðum á sunnudeginum við æðislegan morgunmat fullt af ávöxtum og svo gaman hvað þær borða bara hollt og lífræntræktaðann mat sem ég dýrka og eru í þokkabót æðislegar!
Paula fór sem skiptinemi til Japan og systir hennar er núna úti í Danmörku þannig þau eru öll með góða reynslu og skilja mig mjög vel og tóku þá ákvörðun að hósta mig allt árið ef ég skil þau rétt og í Desember fer ég og mamman að ferðast um allar strendur mexíco ekkert smá spennandi er svo ánægð! En á sunnudeginum forum við á fund með fjölskyldunni og ræddum málin og ég tók dótið mitt og það var ákveðin kveðjustund mjög sértsakt og þetta var eins og jarðarför haha… En loksins kom ég heim og tók uppúr töskunum og líður mun betur núna J
Í dag forum við í immigration og erum að reyna redda vísanum fékk í staðinn að sleppa skólanum en í næsta laugardag á ég afmæli og það verður svolítið skrítið að halda uppá það með fólki sem ég þekki mjög lítið en held að það verði bara fínt þar sem afmæli í mexico er eins svo stór atburður hjá þeim.

Wednesday, September 19, 2012

:)


Jæja þá er búið að vera nóg seinustu viku en ég nennti ekki allveg skólanum þessa vikuna útaf ég var alltaf að fá svona hitaköst og ógleði en þá fór ég bara 2 daga í skólann í vikunni.
Ég er ekki frá því að spænsku kennarinn hati mig þar sem það eru 3 stelpur frá ítalíu sem kunna aðeins of góða spænsku og þá kann ég ekkert við hliðiná þeim en eftir spænskutíma á þriðjudaginn forum við aðeins að rölta um bæinn að leita að afmælsigjöf fyrir eitthverja stelpu en svo tók ég strætó heim og það tók ekki nema 2 klukkutíma að fá strætó því að allir voru fullir það var æðisleg bið í hitanum en ég er ekki frá því að ég sé ekki beint í uppáhaldi hjá spænskukennaranum þar sem ég kann ekki jafn góða spænsku og ítölsku stelpurnar og þegar hann spyr mig veit ég aldrei neitt. En sá skóladagur fór aðalega í það að hjálpa vinkonu minni að skipta um fjölskyldu þar sem hún býr í rottuholu og lýður ömurlega heima hjá sér en samt er fjölskyldan svo yndisleg en sem betur fer fekk hún nýja fjölskyldu og mokríka en hún var byrjuð að venjast því að baða sig úr bala í meigluðu baðherbergi og fannst mjög skrítð að fá loksins sturtu sem var mjög  skrítið að heyra en það er svo mikið rugl í Suður – Ameríku kerfið og get nú ekki sagt að öllum sé treystandi hérna þannig maður verður að passa sig rosalega hvað maður segir .



Á föstudaginn var ekkert smá spes dagur, en það var dagurinn fyrir þjóðhátíðardag Mexicana og var nú meiri veislan í skólanum og allir áttu að koma með veitingar en ég vissi það ekki haha en eini dagurinn á árinu sem að maður má sleppa skólabúningum, svo átti vinkona mín Astrid afmæli og var haldið í hefðina og hent andlitinu hennar í köku og svona! Um morgunininn þegar ég labbaði inní stofuna voru 2 stelpur að hengja upp fullt af svona post-it miðum á borð hjá einni stelpunni og ég skildi ekkert hélt að þetta tengdist deginum eitthvað og svo fer ég bara útur stofunni og svo alltíeinu kemur vinur minn inni í stofuna með blómvönd og miða sem stóð á á spænsku ,, Viltu vera kærastan mín? “ og hún sagði auðvitað já og allir klöppuðu og ég var í sjokki í svona sirka 30 mínútur því að mér fannt þetta svo skrítið og allir voru að hlæja að mér því að eg stóð þarna bara hvað er íii gangi? – þetta var eins og þegar beðið er um að gifast sér og ekki einu sinni folk á íslandi gengur svona langt þegar það er verið að biðja um hönd eitthvers haha..
Allvegana fór ég og systir mín í 2 tíma strætóferð útaf við ætluðum að fara skoða rosa fínt moll og það var svona sirka 40 stiga hiti og enginn loftræsting og ég hef aldrei verið jafn uppgefin eftir ferðina og rosa spennt að sjá mollin neinei, er ekki ein búð í þessu molli heldur bara svona stór matvöruverslun þannig við þurftum að fara alla leið tilbaka og ég nennti ekki með heim til frænku hennar því að þau tala endalaust þannig ég fór ein í mollið og verslaði mér smá föt og afmælisgjöf fyrir vinkonu mina og fór svo heim og talaði við pabba á skype og fór svo á veitingarstað með vinahópnum til að gera svona ,,surprise” fyrir stelpuna en ég kom auðvitað alltof seint.. Mexicanar ég er að segja ykkur þeir kunna sko ekki á klukku! En það er allvegana búið að banna okkur að hanga með sjálfboðaliðum AFS sem er nú meira ruglið þar sem þau eru í skólanum okkar og eru í vinahópnum haha og einn sjálfboðaliðinn er besti vinur skiptinemans og enginn skilur neitt þannig við brjótum bara reglurnar og auðvitað komu þau með okkur út að borða.
En það var rosalega gaman og alltíeinu áður en við forum sagði systir mín mér að taka með mér náttföt því að ég átti að fara gista hjá vinkonu minni og þeim datt ekki í hug að spurja mig hvort að ég vildi það en auðvitað vildi ég það haha þannig ég fór heim með henna eftir út að borða og með bróðir hennar og vin hennar og við vorum hjá þeim að spjalla og ótrúlegt hvað hún er orðin náin foreldrum sínum og ekki ég! En það er annað hún er ítölsk þannig hún kann roslaega góða spænsku en það var mjög fínt að fá smá lúxus og sofa með sæng og mjög hreint heimili svona til tilbreytingar haha !
 
Daginn eftir ákvöddum við að fara skoða svona fjöll og fengum leigubíl til að skutla okkur á milli útsýnisstaða en þetta var mjög virtur staður og þurftum við að borga okkur inn og þar voru sko venjulegir vegir loksins!
En það var mjög falleg hinsvegar orðið dálítið þreytt eftir smá að vera sjá alltaf sama og sama útsýnið bara frá öðru sjónarhorni en svo forum við í Park Marimba þar sem er spilað svona eins og piano með kjuðum og fengum okkur krap en þá kom demba og við forum í mollið í staðinn en ég var orðið of þreytt fyrir lífið þannig ég fór heim og lagði mig og hafði svo bara rólegt um kvöldið!


Á sunnudeginum vöknuðum við og forum í morgunmat og þar smakkaði ég allra bestu tacos á æfinni vá hvað þær voru góðar haha og forum svo og skoðuðum eitthverja á og löbbuðum um  við sátum og vorum að borða krap þá kemur kona að mér og segir við mig hvað ég er falleg og hvort þau megi taka mynd af mér útaf augunum mínum  og þetta er ekki í fyrsta skiptið, þetta er rugl hvað allir eru ástfangir af augunum mínum þar sem þau eru græn og flestir með brún augu haha, en eftir það fórum svo til þessarar frænku og þær töluðu endalaust í svona 5 tíma þannig ég fór uppí herbergið hennar eins og ég geri alltaf þegar ég er í heimsókn og lagði mig haha.. En þá ákvöddum við að fara á ströndina daginn eftir og kíktum ég og systa út með nokkrum krökkum og litlu systur mínar hengu utan í bílnum og þetta er svo ótrúlegt hvað ég er bara komin aftur í 7unda bekk hérna en það vonandi venst eða breytist frekar.


Á mánudeginum lögðum við af stað kl 7 um morguninn til að fara á ströndina og í hvert skipti sem við forum í gegnum svona öryggisverði sem gerðist 2 var þurfti ég að loka augunum útaf við gleymdum immigration spajldinu mínu heima og þeir meiga ekki sjá að ég sé ekki mexicani haha en sem betur fer svaf ég næstum alla ferðina eins og ég geri best hérna í Mexico að sofa og komum við á geðveikan stað með 4 sundlaugum og rosa falleg og ég ákvað að setja ekki á mig sólarvörn þar sem hún var útí bíl og ég nennti ekki að sækja hana og brann svona skemmtilega í andlitinu og á höndunum en það er held ég  farið núna sem betur fer og svo akkúrat kl 6 kom hverfilbilur eða eitthvað í þá áttina sem var eimitt lokunartíminn,en á morgun forum við á ströndina. Fínt að fá smá pásu frá öllu og slaka á ! 
Á þriðjudeginum vöknuðum við og ég var bara brenndust í heimi og vorum að fara á ströndina en byrjuðum á því að fá okkur morgunmat í bænum og þau fengu sér þetta að drekka með sem er mesti viðbjóðurinn
En svo hentum við okkur á ströndina ég sama brunarústin alltaf hreint og þurfti að vera á veitinarstað næstum allan tímann útaf eg vildi ekki brenna meira og ég hef ALDREI séð jafn stórar öldur þetta var bara klikkuð og það eðlilegasta hérna úti



En svo fórum við út að borða og ég fékk svo best í heimi að borða




Sunday, September 9, 2012

16 dagar hérna úti komnir!

Núna eru 2 vikur liðnar síðan ég kom til fjölskyldunar í Tuxtla og allt gengur rosalega fyrir utan að ég er ekki ennþá með rúm haha... En það er bara smáatriði, búin að komast að því að frelsið hérna er bara alls ekki það sama og á Íslandi, en vissi það nú áður en þetta er samt rugl.. Seinustu helgi kíktum við í eitthvað party og áttum að vera komnar heim kl 11 en það lengdist til 2 sem betur fer og á laugardeginum var bara svona chill dagur og við kiktum í sund líka sem var mjög spes, litlu stelpurnar voru að fara í afmæli og þar áttum við að fara í sund en þegar við komum voru bara fullt af litlum krökkum í sundlauginni og eg skildi ekkert þannig ég og systir min fórum á eitthvern veitingarstað þar sem það var sundlaug fyrir gesti veitingarstaðsins og venjuleg bikení eins og á íslandi er ekki allveg við hæfi hérna þar sem allir fara í sund í fötunum en svo man ég ekki meir hvað gerðist þessa helgi haha... En öll vikan fór í það að vera í skólanum og það var prófavika þannig það var mjög skrautlegt þar sem ég kann roslalega litla spænsku og við byrjuðum í skólanum eftir að þau voru búin að vera í 2 vikur þannig ég held að ég hafi fengið 0 í flestu haha.. En það var alltílag, svo fórum við í spænskutíma eins og vanalega 3var í vikunni í 2 klukkutima og maður er alltaf svo uppgefinn hérna það er ekki hægt að vaka lengi en á miðvikudaginn fórum við í aðra borg sem heitir San Cristobal sem var ótrúlegt, við keyrðum í svona klukkutíma og þetta var eins og að vera komin í annað land þar sem að þar var rigning og kallt allveg eins og á íslandi og þetta var mjög falleg borg og við röltum þarna um í rigningunni og fékk að smakka eitthvað súkkulaði pönnuköku með bönunum og kakó sem var mjög skrítið á bragðið en ég varð veik þarna í borginni og hnerraði á 2 min fresti þannig foreldrar mínir hentu í mig eitthverjum pillum og ég lagaðist sem betur fer en eitt mjög spes líka, þegar við komum fóru þau í skottið og þá var dominos pitsa þar og við fórum í eitthvað moll þarna og þau bíðu í klukkutíma með að borða pítsuna og gátu ekki bara keypt pítsu í mollinu heldur komu með sína eigin og settu kokteilsósu á pítsuna , já það er kokteilsósa í Mexico það vissi ég ekki!!




 En svo á föstudaginn var haldið surprise afmæli fyrir einn skiptinemann sem var mjög spes þar sem maður á að taka bita af kökunni og svo er smellt andlitinu mans ofaní kökuna haha og það var eins og það hafi verið að skýra hann þar sem það var settur blómakragi á hann og pabbi stráksins sem átti húsið kom með eitthverja bæn og rugl en það var mjög fínt að chilla aðeins með hinum skipitnemunum og öðrum krökkum úr skólanum.

Með kransinn og kökuna framní sér


Það hefur ekki verið gaman að þrífa eftir þessa veilsu þar sem að það var hent svona dóti yfir mann allann !



En svo um kvöldið sótti mamma mín mig og leyfði mér að fara í party án systur minnar í fyrsta skiptið loksins smá frelsi haha... En á laugardagsmorgninum fékk ég að sofa út í fyrsta skiptið og fórum svo niðri í bæ að versla og ég keypti mér converse skó á ekki meira en 6 þúsund krónur, gallabuxur á þúsund kall og veski á 2 þúsund, allt svo ótrúlega ódýrt hérna þetta er ekki eðlilegt og svo eru ótrúlegustu hlutir dýrir miðað við allt hitt. :)) En þangað til næst :)