Monday, November 19, 2012

....

Ég veit ekki allveg hvað ég á að skrifa hérna en ég veit það að ég myndi gera allt fyrir eina pulsu með steiktum lauk og snjó!!

Ég er búin að vera hérna í 2 mánuði og 3 vikur eða 87 dagar sem er ekkert smá og mér finnst ennþá skrítið að vita að ég sé í Mexico, þegar maður fer svona út fattar maður hvað ísland hefur það gott og vá hvað ég sakna þess að fá íslenskt vatn úr krananum og kúra undir sæng þegar það er vont veður ( eins og alltaf), en sem betur fer er að kólna smá þannig á nóttuni er maður ekki að deyja úr hita eins og í byrjun en ég kvíði ekkert smá fyrir maí því þá er bara ólifanlega heitt.. 

Systir mín er að fara til Japan eftir 3 vikur og fyrir það ætlum við til Mexico city og erum búnar að kaupa flugmiða og fara í smá skemmtiferð og næstu helgi er haldið til Oxaca sem er rugl fallegur staður 8 tíma í burtu.. Seinasta vika var frekar róleg og er allt orðið rosalega venjulegt fyrir mér hérna. 
Á Föstudaginn höfðum ég og systir mín bara cosy kvöld og á laugardaginn var kíkt smá út á lífið en bara til 12 því eg er bara 5 ára... Best er að byrja snemma hér! Mexico er klárlega það strangasta sem ég hef kynnst á æfinni en maður gerir bara gott úr því! Á Sunnudaginn fórum við svo upp í sumarbústað en á staðinn fyrir að vera sumarbústaður var þetta meira svona vetrarhús þar sem þetta var lengst upp í fjöllunum og ískalt. Frændi minn átti bústaðinn og átti hann risa stóran vínkjallara og fórum í smá vínsmökkun og fengum ekkert smá áhugaverða kennslu um öll vínin. En mér finnst þau samt öll smakkast eins. 

Í dag var svo frí í skólanum þannig við fórum í kalda bæinn og mér finnst alltaf jafn ótrúlegt að fara úr 30 stiga hita í 15 stig á 40 mínútum, en ég fór með vini mínum og systur minni og fórum við í eitthvern náttúrugarð og borðuðum pítsu og fórum í nokkurnskonar lautarferð, fórum svo og skoðuðum okkur um og fórum svo í centralið og fengum okkur ís og fórum svo heim og beint út að hlaupa ísinn og pítsuna af okkur og ligg ég hérna uppgefin og ekki allveg að nenna í skólann á morgunn . Get ekki sagt að það sé beint gaman að vakna kl 5 á morgnanna og ég er eimitt mesta svefnburka í heiminm þannig hver morgun er barátta haha... en þangað til næst xxx




Wednesday, November 14, 2012

Venjulegt líf



ég fór ekki mikið í skólann seinustu viku þar sem ég er búin að vera deyja úr hausverk og það hjálpar ekki til að krakkarnir í skólanum eru liggur við að öskra og engin smá læti í þeim þannig.. En á fimmtudeginum var AFS fundur og var okkur uppljóst fullt af fleiri reglum og það má t.d. ekki ferðast með neinum nema hann sé 24 ára og svona skemmtileg.. Alltaf verið að reyna skemma allt fyrir manni og í þokkabót er AFS í Mexico mjög strangt. Get nú ekki sagt að ég hafi verið sátt eftir þennan fund en svo fór ég út að borða með systur minni og vinkonu minni og svo heim að sofa. Á föstudeginum fór ég loksins í skólann og á föstudögum eru bara 3 timar þannig það er alltaf mjög fínt en svo þarf maður að bíða þangað til klukkan sé orðin tvö til þess að mega fara úr skólanum. Eftir skóla lagði ég mig smá og fór svo í spænskutíma hérna heima hjá mér, það kemur kona 2x í viku og kennir mér spænsku sem er mjög gott því að ég náði þessu ekki allveg í hinum spænskutímunum. Um kvöldið fór ég svo út að borða með skiptinemunum og svo í partý með systur minni. Mikið skemmtilegra að vera með eldri krökkum hérna úti þar sem allir eru ennþá 13 ára í anda og þroska á mínum aldri haha..:/

Á laugardeginum vaknaði ég snemma og fór að læra spænskuna mína og talaði við pabba á skype og fór svo í kirkju, alltaf skemmtilegt að kíkja í kirkju frá 6-8 á laugardögum..... gerist ekki leiðilegra, en  eftir kirkju kikti ég í mollið með fjölskyldunni minni og svo út að borða, mjög rólegt alltaf hreint. 

Á sunnudeginum var svo loksins eitthvað skemmtilegt að gerast en þá fórum við í svona waterfalls og ekkert smáaaa flott! Klifruðum þarna upp eins og sést á myndunum og eyddum deginum þarna... Ætla klárlega aftur þangað, en eini gallinn var að það voru svona trilljón tröppur og áligga jafn hátt og esjan sem maður þurfti að labba niður og svo upp til að komast að þessu. Eftir það kíktum við í mat til pabbans sem er alltaf mjög gaman því hann er svo eðilegur ( eða mér finnst það ekki mexíckönum) og svo í ísbíltur og leggja sig og enduðum helgina á því að fara í matvörubúð.. Já núna er allt að verða rosalega basic og allt í smá rútínu hvernig þetta er, ég er byrjuð að kvíða smá fyrir að systir mín er að fara eftir 3 vikur til Japan í einn mánuð og þá er ég ein með mömmuni og bróðurnum og yfir jólin, það verður nú eitthvað og eimitt í dag setti mamma mín upp jólatréð, já miðjann nóvember ekkert verið að spara!





Ég er búin að vera reyna að hugsa fleiri skrítnar staðreyndir um mexico haha og hér koma nokkrar :
  • Það er allveg heimsending á öllu, matvörubúðinni, apótekinu, öllum mat name it! þetta er mætt heim til þín eftir hálftíma !
  • Hérna setja þau sítrónu og salt á ALLAN mat, þá erum við að tala um ávexti, grænmeti og allan matinn en þegar það kemur að frönskum nei þá er ekki sett salt heldur pipar haha!
  • Það má ekki gleyma chilíinu en það er einnig sett á lang flest, nammi, ávexti, grænmeti og popp og snakk.. Viðbjóður
  • úti á götu er verið að selja alskonar hluti sem manni hefði aldrei dottið í hug að yrði selt standandi að labba milli bíla
  • Mexícanar borða mjög hægt, ég hélt að ég borðaði hægt en samt er ég alltaf löngu búin að borða undan þeim og sumir taka sér extraa langan tíma í þetta
  • Þegar þau djóka setja þau alltaf tunguna út t.d. vá hvað þú ert ljót eeeee og setja tunguna út.. Rosa spes, ( og finnst kaldhæðni rosa töff) en kunna samt ekki að nota hana.
  • Hérna dettur engum í hug að setja vatnið inní ískáp nei það er bara drukkið heitt í hitanum
  • Og seinast en ekki síst í skólanum er í tísku að gráta eða eitthvað, allvegana 5 manneskjur af 300 manna skóla grenja á dag.
En næstu helgi er ég að fara í ferðalag en það er ekki allveg 100% þannig vonandi verður næsta blogg skemmtilegra, já ég segi það alltaf því mér finnst þessir hlutir sem ég er að skrifa svo ómerkilegir haha... En ég er allvegana komin með 6500 views... keep it going

xxx


Thursday, November 8, 2012

Cancún

Um helgina fór ég til Cancún með systur minni og pabba hennar, ég verð að afsaka hvað ég er aðeins of löt fyrir lífið þessa dagana en allvegana hér kemur það:
Við fórum á fimmtudeginum kl 6 í rútuna í 13 klukkustundir og mættum til bæ sem heitir Merida og sóttum bróðurinn sem er að fara búa hjá okkur næstu mánuði. Við fórum heim til hans og sóttum dótið og fórum svo að heimsækja píramída sem voru búnir til fyrir 3000 árum af Mayum og eru rosa frægir hérna í Mexico og ekkert smá skrítið að heyra og sjá túrista og ensku vá! 





Það var rosalega gaman að sjá þetta en því miður höfðum við bara einn og hálfan tíma í að sjá alla þessa píramída og var ekkert smá verið a reyna selja manni þarna. Eftir þetta keyrðum við í klukkutíma til Cancún og váaa hvað allt var flott þarna bara endalaust af huges hótelum í alskonar gerðum og strandir. Við fórum á all you can eat buffet og fengum okkur þennan girnilega eftirrétt 


Eftir það kíktum við í mallið að versla smá og ég verð liggur við þunglynd að horfa á öllu flottu fötin og kaupa ekki. En eftir þetta fórum við uppá hótel og kíktum út á lífið restina á kvöldinu og ég verð að segja öllum sem lesa þetta Cancún er beeesti staðurinn til að gera alla þessa hluti vá!!
Á laugardeginum voknuðum við og fórum í morgunmat og fengum rosa gott hlaðborð á ömurlegasta hóteli í heimi haha. En eftir það keyrðum við í klst og fórum í eitthvern garð ég og systir mín sem var ekkert smá dýr og allt átti að vera all included en bullshit.. Það er alltaf verið að reyna svindla á manni hérna skal ég segja ykkur! En þar fékk ég að snorka, uppáhaldið mitt svo fallegast í heimi, sjá höfrunga og gera allskonar activits og borða endalaust haha... En eftir það vorum við rosalega þreyttar og héldum af stað á aðra strönd þar sem við hittum pabbann og bróðurinn og röltum um það og heitir þá staður Playa de Carmen og planið er að fara aftur í 2 vikur ein með systu í Janúar og get ég ekki beðið!!
Þegar við komum aftur til Cancún kíktum við í mallið og fékk að versla smá loksins.

Mjög basic í mallinu haha!
En svo fengum við okkur að borða á Hooters,
en eftir þennan dag vorum við dauð úr þreytu og langur ferðadagur framundan þannig við fórum að sofa snemma.
Sunnudagurinn fór allur í það að ferðast frá 11 um morgun til 3 um nótt og aldrei upplifað neitt jafn leiðilegt og þá byrjaði maður að fá smá heimþrá og er þessi vika búin að vera smá í þeim gír en það er bara eðlilegt og systir systur minnar er að ganga í gegnum það nákvæmlega sama þannig, þetta er sko sannkallaður rússíbani.
En í þessari viku er eg búin að vera með svo mikinn hausverk þannig eg hef ekkert mikið verið að mæta í skólann þannig bara slökun útí eitt.. Fyrir utan yndislega jarðsjálftan sem kom í gær sem var 7,4 4 klst frá... En alltígóðu samt sem áður
Þangað til næst xx