ég fór ekki mikið í skólann seinustu viku þar sem ég er búin að vera deyja úr hausverk og það hjálpar ekki til að krakkarnir í skólanum eru liggur við að öskra og engin smá læti í þeim þannig.. En á fimmtudeginum var AFS fundur og var okkur uppljóst fullt af fleiri reglum og það má t.d. ekki ferðast með neinum nema hann sé 24 ára og svona skemmtileg.. Alltaf verið að reyna skemma allt fyrir manni og í þokkabót er AFS í Mexico mjög strangt. Get nú ekki sagt að ég hafi verið sátt eftir þennan fund en svo fór ég út að borða með systur minni og vinkonu minni og svo heim að sofa. Á föstudeginum fór ég loksins í skólann og á föstudögum eru bara 3 timar þannig það er alltaf mjög fínt en svo þarf maður að bíða þangað til klukkan sé orðin tvö til þess að mega fara úr skólanum. Eftir skóla lagði ég mig smá og fór svo í spænskutíma hérna heima hjá mér, það kemur kona 2x í viku og kennir mér spænsku sem er mjög gott því að ég náði þessu ekki allveg í hinum spænskutímunum. Um kvöldið fór ég svo út að borða með skiptinemunum og svo í partý með systur minni. Mikið skemmtilegra að vera með eldri krökkum hérna úti þar sem allir eru ennþá 13 ára í anda og þroska á mínum aldri haha..:/
Á laugardeginum vaknaði ég snemma og fór að læra spænskuna mína og talaði við pabba á skype og fór svo í kirkju, alltaf skemmtilegt að kíkja í kirkju frá 6-8 á laugardögum..... gerist ekki leiðilegra, en eftir kirkju kikti ég í mollið með fjölskyldunni minni og svo út að borða, mjög rólegt alltaf hreint.
Á sunnudeginum var svo loksins eitthvað skemmtilegt að gerast en þá fórum við í svona waterfalls og ekkert smáaaa flott! Klifruðum þarna upp eins og sést á myndunum og eyddum deginum þarna... Ætla klárlega aftur þangað, en eini gallinn var að það voru svona trilljón tröppur og áligga jafn hátt og esjan sem maður þurfti að labba niður og svo upp til að komast að þessu. Eftir það kíktum við í mat til pabbans sem er alltaf mjög gaman því hann er svo eðilegur ( eða mér finnst það ekki mexíckönum) og svo í ísbíltur og leggja sig og enduðum helgina á því að fara í matvörubúð.. Já núna er allt að verða rosalega basic og allt í smá rútínu hvernig þetta er, ég er byrjuð að kvíða smá fyrir að systir mín er að fara eftir 3 vikur til Japan í einn mánuð og þá er ég ein með mömmuni og bróðurnum og yfir jólin, það verður nú eitthvað og eimitt í dag setti mamma mín upp jólatréð, já miðjann nóvember ekkert verið að spara!
Ég er búin að vera reyna að hugsa fleiri skrítnar staðreyndir um mexico haha og hér koma nokkrar :
- Það er allveg heimsending á öllu, matvörubúðinni, apótekinu, öllum mat name it! þetta er mætt heim til þín eftir hálftíma !
- Hérna setja þau sítrónu og salt á ALLAN mat, þá erum við að tala um ávexti, grænmeti og allan matinn en þegar það kemur að frönskum nei þá er ekki sett salt heldur pipar haha!
- Það má ekki gleyma chilíinu en það er einnig sett á lang flest, nammi, ávexti, grænmeti og popp og snakk.. Viðbjóður
- úti á götu er verið að selja alskonar hluti sem manni hefði aldrei dottið í hug að yrði selt standandi að labba milli bíla
- Mexícanar borða mjög hægt, ég hélt að ég borðaði hægt en samt er ég alltaf löngu búin að borða undan þeim og sumir taka sér extraa langan tíma í þetta
- Þegar þau djóka setja þau alltaf tunguna út t.d. vá hvað þú ert ljót eeeee og setja tunguna út.. Rosa spes, ( og finnst kaldhæðni rosa töff) en kunna samt ekki að nota hana.
- Hérna dettur engum í hug að setja vatnið inní ískáp nei það er bara drukkið heitt í hitanum
- Og seinast en ekki síst í skólanum er í tísku að gráta eða eitthvað, allvegana 5 manneskjur af 300 manna skóla grenja á dag.
En næstu helgi er ég að fara í ferðalag en það er ekki allveg 100% þannig vonandi verður næsta blogg skemmtilegra, já ég segi það alltaf því mér finnst þessir hlutir sem ég er að skrifa svo ómerkilegir haha... En ég er allvegana komin með 6500 views... keep it going
xxx


No comments:
Post a Comment