Monday, November 19, 2012

....

Ég veit ekki allveg hvað ég á að skrifa hérna en ég veit það að ég myndi gera allt fyrir eina pulsu með steiktum lauk og snjó!!

Ég er búin að vera hérna í 2 mánuði og 3 vikur eða 87 dagar sem er ekkert smá og mér finnst ennþá skrítið að vita að ég sé í Mexico, þegar maður fer svona út fattar maður hvað ísland hefur það gott og vá hvað ég sakna þess að fá íslenskt vatn úr krananum og kúra undir sæng þegar það er vont veður ( eins og alltaf), en sem betur fer er að kólna smá þannig á nóttuni er maður ekki að deyja úr hita eins og í byrjun en ég kvíði ekkert smá fyrir maí því þá er bara ólifanlega heitt.. 

Systir mín er að fara til Japan eftir 3 vikur og fyrir það ætlum við til Mexico city og erum búnar að kaupa flugmiða og fara í smá skemmtiferð og næstu helgi er haldið til Oxaca sem er rugl fallegur staður 8 tíma í burtu.. Seinasta vika var frekar róleg og er allt orðið rosalega venjulegt fyrir mér hérna. 
Á Föstudaginn höfðum ég og systir mín bara cosy kvöld og á laugardaginn var kíkt smá út á lífið en bara til 12 því eg er bara 5 ára... Best er að byrja snemma hér! Mexico er klárlega það strangasta sem ég hef kynnst á æfinni en maður gerir bara gott úr því! Á Sunnudaginn fórum við svo upp í sumarbústað en á staðinn fyrir að vera sumarbústaður var þetta meira svona vetrarhús þar sem þetta var lengst upp í fjöllunum og ískalt. Frændi minn átti bústaðinn og átti hann risa stóran vínkjallara og fórum í smá vínsmökkun og fengum ekkert smá áhugaverða kennslu um öll vínin. En mér finnst þau samt öll smakkast eins. 

Í dag var svo frí í skólanum þannig við fórum í kalda bæinn og mér finnst alltaf jafn ótrúlegt að fara úr 30 stiga hita í 15 stig á 40 mínútum, en ég fór með vini mínum og systur minni og fórum við í eitthvern náttúrugarð og borðuðum pítsu og fórum í nokkurnskonar lautarferð, fórum svo og skoðuðum okkur um og fórum svo í centralið og fengum okkur ís og fórum svo heim og beint út að hlaupa ísinn og pítsuna af okkur og ligg ég hérna uppgefin og ekki allveg að nenna í skólann á morgunn . Get ekki sagt að það sé beint gaman að vakna kl 5 á morgnanna og ég er eimitt mesta svefnburka í heiminm þannig hver morgun er barátta haha... en þangað til næst xxx




No comments:

Post a Comment