Ég ætla
gera eitt blogg í tilefni dagsins eftir nokkrar eftirspurnir, ég er ekki frá
því að ég sé einn latasti skiptinemi í heimsinssögu og ef ég skrifa vitlaus er
það útaf ég kann ekki lengur íslensku, þarf að vanda mig að hugsa á íslensku
þar sem ég hugsa bara á spænsku og ensku.
Það er
búið að vera eilíf síðan ég skrifaði seinast en nákvæmlega mánuður held ég.
Mikið er
búið að gerast seinustu daga, í þar seinustu viku var svona " feria " í
bænum mínum og fórum við á föstudeginum,laugardeginum, þriðjudeginum,
miðvikudeginum og föstudeginum en þar voru fullt af skemmtistöðum og rússíbönum
og svona allskonar og tónleikar. Á Laugardeginum fór ég og systir mín útá
flugvöll og fórum í flugvelina til að fara til Mexico city. Þegar við komum
þangað voru löggur allstaðar og fullt af stórum húsum. Við fórum í húsið sem
við áttum að gista í og hittum þar mömmuna og bróðirinn sem komu þangað fyrir
viku. Ég fékk fyrsta drauminn minn á spænsku þessa nótt í Mexico city og það
var mjöög skrítið verð ég að segja. Við skiluðum dótinu uppá herbergi og fórum
svo og fengum okkur að borða í mallinu og ákvað ég svona skemmtilega að æla úr mér líftúrunni inná klósetti í mallinu / alltaf að safna í lífsreynslubankann. Eftir það var ég dauð úr þreytu og fórum heim og löggðum okkur og fórum í annað moll um kvöldið. Daginn eftir fórum ég & systir mín í rússíbanagarð og var ég fárveik því það var skítakuldi þarna en það stoppaði mig ekki. Það var sjúklega gaman í honum og eins og þú sérð á þessari mynd : Þá voru þeir huges!
Þegar við vorum komnar með ógleði í mallann þá fórum við í mallið og fórum að versla! Loksins falleg föt en ekkert smá mikið að gera og voru búðirnar opnar til 12 á nóttuni, annað en á Íslandi bara opið til 6.
Auli með pokana
Vorum allve orðnar dauðar í fótunum þannig við fórum heim & fengum okku nachos í kvöldmat, mexícanskur matur er klárlega besti matur í heiminum og veit ég ekki hvað ég geri án hans þegar ég kem heim, mun bókað ekki finna bragð af íslenska matnum eftir allt þetta chili.
Næsta dag fórum við svo í mesta túristadag ársins, við fórum niðrí bæ og röltum um miðbæinn og var ekkert smá svona evrópuþema þarna.
Áður en ég kom til Mexico vissi ég ekki að konur væru svona mikilvægar hérna en alltaf eru konur í forgang og t.d. þegar ég fer í strætó og það eru engin sæti eru alltaf menn sem standa upp til að leyfa mér að setjast! ekket smá spes
Við fórum svo í svona " turbus" og keyrðum um alla Mexico City og fórum á eitthvað safn sem að ríkasti maður í mexico bjó til og er ókeypis með fullt af frægum listmunum.
Eftir það fórum við svo í sjúklega flott moll sem var svona fyrir ríka fólkið og vá það var öryggisvörðir á 1 metra fresti. Allstaðar ! Við versluðum smá meira og fórum svo aftur inní rútuna og biðum í þessari skemmtilegu umferð !
Svo fórum við heim en þetta var seinasti dagurinn okkar saman því um morguninn næsta dag fór þessi elska til Tokyo í mánuð. :(
Daginn eftir var seinasti dagurinn í Mexico city og fór ég með mömmu minni á eitthvern markað og borðuðum við grænar tortillur! Og svo daginn eftir fórum við aftur í flug og heim í hitann loksins! Skrítin tilfining að vera spennt að komast heim en samt ertu í rauninni ekkert að fara heim.
Í þessari viku var einning prófavika en mætti ég bara í 2 próf því ég er að fara skipta um skóla í janúar þannig það er komið á hreint! Nýji skólinn er án skólabúninga, með rækt og klára skólann í maí! Gleði gleði.
Seinustu daga hef ég svo sem ekki gert neitt nema hanga í tölvunni og deyja úr heimþrá. Get nú ekki sagt að ég sé mikið jólabarn en samt er eitthvað við kaldan december og jólasmákökur sem ég sakna ekkert smá mikið og bara allt þetta góða á íslandi.
Í gær fór ég svo í svona XV afmæli sem er 15 ára afmæli fyrir stelpur. Þetta var RUGL, í fyrsta lagi var okkur ekki boðið í þetta afmæli en vinur minn bauð mér og svo komst ég að því að honum var ekki heldur boðið, þá er maður búinn að crasha afmæli & jarðarför, eina sem er eftir er brúðkaup haha!
En allavegana var þetta haldið í svona Country Club og var þetta bara mesta Beverly Hills partý í heimi, þetta var flottara en brúðkaup meiraðsegja!
Þetta var afmæli númer 2 hjá henni, semsagt fyrra afmælið var svona glamour og þetta var mexícanska
Ég & Nicole vinkona mín ekki allveg nógu fínar fyrir þetta partý!
Áður en hún kom á sviðið voru þessir mexicanar að dansa
Svo kom hún , það voru allvegana 15 myndatökumenn að taka myndir í þessu afmæli, 15 ára gömur þetta er rugl!
Dansa með þeim skvísan og svo eftir þetta kom flugeldasýning. Við vissum ekki einu sinni hvað stelpan hét
Fullt af mat & áfengi í þessu dæmi, aldrei verið í jafn miklu sjokki. Svona gerir ríka fólkið þetta
En núna eru 4 dagar í jólin og gæti ég ekki kviðið meira fyrir. Hérna eru jólin 24. des eins og á íslandi og er borðaður fiskur á jólunum og svo er ekkert meira gert. Borðað og búið! Spenningur í hámarki...
Svo 26. des förum við í 8 daga ferðalag til Merida og á ströndina og svona vonandi tekur maður gleðinni aftur þá. En á föstudaginn er ég að fara í kirkjubúðir jibbí! Allt svo steikt hérna úti en þangað til næst xx
o




No comments:
Post a Comment