Monday, September 24, 2012

Breytingar!


Núna er kominn 24 sepember og það er ekkert smá sem tíminn líður! Það hefur mikið verið í gangi seinustu daga en seinasta miðvikudag fór ég í það að reyna skipta um fjölskyldu en það er ferli sem tekur langann tíma þannig á fimmtudaginn sendi ég bréf og það var nú meira vesenið sem er mjög eðlilegt en á föstudaginn fékk ég það í gegn að á Laugardaginn að fá nýja fjölskyldu útaf ástæðum sem ég held megi ekki segja á netinu haha.. en það var mjög áhugavert ferli en á föstudaginn í skólanum byrjuðu krakkarnir daginn með að koma með sætustu kanínuna í skólann og ég var að klappa henni og alltíeinu bara já við erum að fara drepa hana á eftir í líffræði og ég hef aldrei verið í jafn miklu sjokki! Hélt nú að það væri eitthvað djók en neinei klst sienna heyrði ég öskur og þá var kanínuunginn drepinn og tekið líffærin útúr henna greyið, viðbjóður..


Litla sæta kanínan sem er dáin.. Ég spyr bara hvernig er þetta hægt

 En eftir skóla fór ég heim og lagði mig þar sem ég var að deyja úr hausverk eitthvað sem maður er oft með hérna útaf sólinni og tungumálinu og alltíeinu kom host mamma mín að mér og sagði að við værum að fara borða með bossinum yfir AFS í bænum mínum en greinilega ekki þar sem ég var greinilega að fara út að borða með vinum mínum haha en fengum rosa góða kjúklingavængi og skemmtum okkur vel og svo forum við aftur í kvöldmat kl half 2 um nóttina útaf ég var svo svöng og forum svo heim. Ég var  vakin kl 9 um morguninn útaf ég var að fara í “sólarhrings heimsókn til sjálfboðaliða,, og þarna tók á móti mér æðisleg stelpa sem heitir Paula og mamma hennar Elizabeth og við keyrðum heim og þar sýndu þær mér heimilið mitt nýja og allt svo hreint og fínt loksins. Þær búa allveg niðrí í bæ þannig það er stutt í allt og rosalega gaman að fara út að rölta þar sem þetta er bara miðbærinn. Ég fékk mitt eigið herbergið með hjónarúmi og allt sér en herbergið er eiginlega séríbúð þar sem maður þarf að fara útúr húsinu til að fara í það en það er æði að fá loksins privacy. En útaf Paula átti afmæli forum við í San cristobal köldu borgina og röltum um , fengum okkur ítalska pítsu , forum á safn þar sem voru bara munir af fólkinu sem býr í skóginum mjög áhugavert ótrúlegt en satt haha  og forum svo á kaffihús og fengum okkur köku en þá fékk ég að vita það að ég ætti að vera hjá þeim í 2 vikur þangað til að þau myndu finna ekta fjölskyldu. Ég eyddu laugardagskvöldinu bara að horfa á mynd og kosy vildi ekki vera fara út fyrstu nóttina mina hjá þeim. Við vöknuðum á sunnudeginum við æðislegan morgunmat fullt af ávöxtum og svo gaman hvað þær borða bara hollt og lífræntræktaðann mat sem ég dýrka og eru í þokkabót æðislegar!
Paula fór sem skiptinemi til Japan og systir hennar er núna úti í Danmörku þannig þau eru öll með góða reynslu og skilja mig mjög vel og tóku þá ákvörðun að hósta mig allt árið ef ég skil þau rétt og í Desember fer ég og mamman að ferðast um allar strendur mexíco ekkert smá spennandi er svo ánægð! En á sunnudeginum forum við á fund með fjölskyldunni og ræddum málin og ég tók dótið mitt og það var ákveðin kveðjustund mjög sértsakt og þetta var eins og jarðarför haha… En loksins kom ég heim og tók uppúr töskunum og líður mun betur núna J
Í dag forum við í immigration og erum að reyna redda vísanum fékk í staðinn að sleppa skólanum en í næsta laugardag á ég afmæli og það verður svolítið skrítið að halda uppá það með fólki sem ég þekki mjög lítið en held að það verði bara fínt þar sem afmæli í mexico er eins svo stór atburður hjá þeim.

No comments:

Post a Comment