Sunday, October 28, 2012

Smá sunnudags

Seinasta vika var ósköp venjuleg eins og flestar eru en á hverjum morgni vakna ég kl 5, snooza til 6 tek mig hálftím í að gera mig til og borða ( reyna fá eins mikinn svefn og mögulega hægt er) og labba út og tek skólarútuna 2 min frá húsinu mínu kl hálf 7 á morgnanna.. Skólinn er svo ósköp venjulegur fyrir utan hvað það er erfitt að vakna svona snemma. Skólinn byrjar kl 7 og er til 2 á daginn, hver tími er 50 min og er alltaf 10 mín pása milli hvers tíma og enginn hádegismatur. Eftir skóla tek ég svo rútuna heim og þá er "hádegismatur" kl 3 og svo fer ég annaðhvort í ræktina, sef eða hitti krakkana. Ég er svo í einkaspænskutímum 2 svar í viku og þá kemur kona heim til mín og kennir mér spænsku, vikan mín er oftast svona en svo fer ég og systir mín oft út með vinum hennar á kvöldin einnig sem er mikið skárra þar sem þau eru eldri og eru með venjulegann þroska.
Þessi helgi var einnig frekar ómerkileg eins og seinasta en á föstudaginn var ég í spænskutíma frá 7-9 og eftir spænksutímann kom vinkona mín til mín og við og systir mín fórum út að borða og höfðum svo kosy stelpukvöld. Á laugardeginum lituðum við á mér hárið og klipptum það, 10 cm styttra og svart... Ekki beint það sem ég óskaði eftir en vonandi dofnar liturinn og hárið síkkar haha.. En eftir litunina og klippinguna fórum við út að borða aftur á ítalskan pítsa stað sem var ágætur og fórum svo í mallið til að fá okkur ís en fundum ekki uppáhalds ísinn okkar þannig við fórum. Á leiðinni útúr mollinum var klikkað mikil umferð og hringir þá mamma mín í okkur : HVAR ERUÐI?? - þá var víst rán í búðinni sem við fórum í og 3 drepnir eða eitthvað álíka, veit ekki nákvæmlega smáatriðin en þetta tengdist víst eitthverju dópi.. Heppnin var með manni þarna og maður þarf sannarlega að vera varkár hérna úti. En þetta var upplifun fyrir sig. Svo fórum við í kirkjuna á laugardagskvöldi.. Já ég í kirkju á laugardagskvöldi í  2 klst frá 6-8, og var spilað rokktónlist í kirkjunni, menningin hérna er svo rosalega ólýkt og alltaf er verið að koma manni á óvart með nýjum skrítnum hlutum. En ég fer í kirkju alltaf á laugardagskvöldum , sunnudagsmorgnum frá 10-12 og aftur frá 18-20.. Meira ruglið ég perónulega sé ekki pointið í því að fara í kirkju afhverju getur maður ekki bara beðið heima hjá sér. En fjölskyldan mín er kristintrú en kristintrú hérna úti er allt öðruvísi en á íslandi. Ef þú ert kristintrúaður trúiru á Jesus og guð eins og allstaðar í heiminum en það er enginn kross eins og á íslandi og fólk mætir of seint í kirkju eða mætir bara í korter og fer svo rosalega sérstakt.. En þegar þú ert kaþólskur trúiru á maríu mey og þau eru með kross með eitthverju brauði inní og trúa þau á þetta heilaga brauð. Get nú ekki sagt að ég sé þetta en það er rosalega sterkt kirkjusamband hérna og þú átt að gera allskonar skrítna hluti fyrir utan kirkjuna, t.d. setja vekjaraklukkuna þína á lag sem tengist guð, senda skilaboð til vina þinna með guðlegum skilaboðum o.fl rugl haha!
En  eftir kirkjuna fórum við heim og náðum í dótið okkar og var planið að fara útúr bænum til pabba systur minnar, við tókum leigubíl. Þegar við komum til hans grilluðum við og sátum úti allt kvöldið með þeim og duttum við í þann gír að plana ferðir.. Og núna erum við búin að kaupa miða til Cancún fyrir fimmtudaginn og gæti ég ekki verið spenntari!! að fara frá fimmtudagsnóttu í 13 tíma rútuferð og vera yfir helgina , föstudag, laugardag og sunnudag og keyra svo á sunnudagsnóttina aftur til baka og sækja bróðir minn sem er að flytja hingað heim. Alltaf eitthvað nýttt! En hann er 22 ára og mun búa hjá okkur. En næsta blog verður ábyggilega mjög skemmtilegt með ferðasögunni þangað til næst xx



No comments:

Post a Comment