Ég ætla byrja bloggið í dag á skemmtilegu strætóferðinni minni í skólann á morgun. Ég sat þarna sultuslök og hlustaði á tónlist, stendur ekki maður upp með sveðju og exi og labbar framhjá mér.. Það sem fólki dettur í hug hérna úti..
Allavegana er ég búin að vera með ódugleg að blogga eins og held ég flestir skiptinemarnir.. Þegar ég var að lesa bloggið hjá hinum skiptinemunum áður en ég fór út fannst mér óþolandi hvað það leið langt milli blogga en núna átta ég mig á því hvað maður er rosalega latur við að gera þetta. Verðið að afsaka það elsku lesendur.
Seinasti mánuður er búinn að vera mjög atburðaríkur
Ég sagði ykkur seinast frá því að ég væri að byrja í nýjum skóla og ég byrjaði ótrúlegt en satt. Skólinn er eins og einkaskólarnir í bíómyndunum. Það kostar ekki meira en minna en 100 þúsund íslenskar mánuðurinn í skólanum ( verð að monta mig smá, svo flott tækifæri að fá að vera í þessum skóla) og allir rosalega vingjarnlegir og allveg athyglin í hámarki. Ég er byrjuð að vera duglegri í ræktinni þar sem það er rækt í skólanum og vonandi fara þessi afs kíló að fjúka af, ef ég stenst mexicanska matinn þar að segja. Ég byrjaði bara á því að fara í viku í skólann og svo kom Lárus til Tuxtla og við fórum saman á flugeldasýningu í öðrum bæ. Þar fékk ég að hitta fjölskylduna hans og horfa á þessa flottu sýningu.

Daginn eftir kom hann svo að gista heima hjá mér því að fjölskyldan hans fór aftur til Tapachula. Við fórum að skemmta okkur ágætlega með pabba mínum og systur minni og endaði það mjög skrautlega eins og flest öll kvöld með pabba mínum. Voru svo AFS búðir næst á stafni. Þetta voru semsagt mid-stay camp og vorum við þarna 24 akkúrat búin að vera 5 mánuði í nýja landinu. Í þessum búðum gerðum við allskonar hluti sem voru svipaðir seinstu 2 búðum, leikir, fræðsla og hvernig líðan þín er. Þarna áttaði ég mig á því hvað ég væri búin að breytast rosalega mikið! Ég hefði aldrei dottið í hug að vandræðalega ég gæti verið svona opin og auðvelt með að kynnast fólki þó að það var ekkert sérlega erfitt áður er það þúsund sinnum auðveldara núna. Það var sundlaug og fyrstu nóttina kl 12 tókum við eftir henni og spurðum manninn sem er yfir afs í mexico hvort við mættum hoppa útí og hann svaraði með því að hann hefði í þykistunni aldrei séð okkur þannig við fórum öll í sund í fötunum, rosalega mexicanskt eða suður- amerískt frekar að fara í sund í fötunum en svona gerist þegar enginn er með sundföt.

Þetta voru rosalega skemmtilegar búðir ótrúlegt en satt og á laugardeginum tókum við því rólega og fórum í afmæli hjá vinkonu minni og röltum yfir á KFC.
Loksins var kominn sunnudagur eftir langa bið! Ferðinni var haldið útá flugvöll og beint yfir til Cancún. Þegar við komum til Cancún tókum við reyndar beint rútu til Playa de Carmen sem er allveg eins og Cancún nema betra! Finnst mér allvegana haha..
Þegar við komum fórum við með töskurnar uppá hótel , sem var viðbjóðslegt en á aðalgötunni það bætti fyrir. Við fórum beint að fá okkur að borða, deyja úr hungri og ekki búin að borða neitt allan daginn. Ég, Nicole og Lárus fórum á ítalskan veitingarstað og fékk ég í fyrsta sinn í Mexico lasagna og röltum svo um bæinn og fórum snemma að sofa enda dauð úr þreytu.
Morguninn eftir var farið í garð sem heitir Xlah, þar fórum við og sáum allskonar dýr, hlaðborð, strönd, blár sjór, snorkla og meira finerí ... Æðislegt að komast í svona frí
Um kvöldið var svo rosalega flott show í 2 klukkutíma með týpískum mexicönskum dönsum sem var rosalega skemmtilegt en mætti hafa verið í 1 klst ekki 2.
Daginn eftir var svo planið að fara í garð sem heitir xplor en hafði ringt um nóttina þannig garðurinn var of hættulegur eða eitthvað í þá áttina þannig við tókum bát á aðra eyju og fórum að snorkla. Þarna voru fiskarnir í þúsundum í kringum okkar engin smá sýn. Við vorum orðin svo rosalega brend þannig við fórum aftur á playa de carmen, fengum okkur að borða og röltuðum um aðalgötuna. Þessi staður er rosalega skemmtilegur og er hann með svolítinn spánargír yfir sig, lítið og krúttlegt.
Seinasta daginn okkar á Playa de Carmen var planið að fara á ströndina en ætluðum við nú ekki að skaðbrenna þannig við tókum röltið eina ferðina enn og ég fór á ströndina meðan Lárus og Nicole fengu sér að borða. Þeir sem þekkja mig best vita hvað ég ELSKA sólbað...
Næsta á dagskrá var 5 tíma rútúferð til Mérida, ég hefði nú allveg verið til í að vera bara á ströndinni því þetta var þriðja skiptið mitt í Mérída. Við komum um kvöldið og hittum þar ítalska stelpu og norskan strák og fórum út að borða með þeim og fórum svo heim til ítölsku stelpurnar og fórum fullt af krökkum í garð að spila gítar og spjalla en það kom demba og ekkert verið að spara með dropana þannig við tókum leigubíl heim og fórum að sofa. Um morguninn fórum við svo að sjá píramídana og tókum fullt af myndum með þeim en held það hefði verið fínt að sleppa því. Þegar við komum heim fór ég og Nicole ( ítalska vinkona mín ) í mallið að kíkja í búðir en þar sem ég er mesti shopaholic í heimi og allveg blönk verslaði ég ekkert. Sorgardagur, um kvöldið fórum við svo á salsabar og dönsuðum og skemmtum okkur fram á nótt... Þá var kominn föstudagur og heimkomudagur. Við gerðum ekkert sérstakt á föstudeginum bara um kvöldið fórum við í rútuna í 15 klst.. Skil ekki hugsunarháttinn í þessu fólki, kostar það sama að taka flugvél en nei þau ákvaða að kaupa rútumiða.. Ruglað lið
En næstu helgi er svo enn annað ferðalagið og vonandi verður það skemmtilegt. Þessi ferð var rosalega skemmtileg í alla staði og vonandi gengur allt vel sem eftir er! No time to waste
Tilfingarrússíbaninn mismunandi eftir manneksjum já
ótrúlegt hvað mexicönum dettur í hug, setja kirkjugarð í miðjum skemmtigarð
Þangað til næst xx



No comments:
Post a Comment