Sunday, January 6, 2013

Gleðilegt nýtt ár & gleðileg jól - Feliz año nuevo y feliz navidad

Núna er loksins komið nýtt ár eftir langa bið!
Ég verð nú að segja að lífið er ekki alltaf dans á rósum þar sem jólin & áramótin voru mjög erfið.
Áður en ég kom hingað út ákvað ég alltaf að segja já vil öllu þegar það er spurt mig um að gera eitthvað og útur því hef ég alltaf vonast fyrir því versta því ef þú ert heppinn er mjög gaman þegar það sem þú hélt að myndir verða ömurlegt verður ágætt eða mjög skemmtilegt ennþá betur.

Ég af öllum fór í kirkjubúðir, fórum um kvöldið og þar voru krakkar frá 12 ára aldri til 25 ára. Ég fór með bróður mínum og byrjað var að borða og farið svo í leiki allt kvöldið.. 25 ára gamalt fólk í leikjum verður ekki skrítnara en það en eins og ég var ábyggilega búin að minnast á áður eru mexicanar ekki allveg í venjulegum þroska. Ég svaf í herbergi með 2 stelpum sem voru 15 og 17 ára og ein sagði mér frá því þegar hún var að knúsa kærastann sinn og pabbi hennar klikkaðist, get ekki sagt að þessi menning henti mér en er alltaf gaman að kynnast öðrum hlutum. Morguninn eftir var morgunmatur og svo var farið í það að syngja kirkjulög, læra biblíuna og fleira kirkjudót, hélt ég yrði ekki eldri.

Ég semsagt eyddi mínum jólum í kirkjunni líka
Á Þorláksmessu var augljóslega ekki gert neitt en á aðfangadag var ég ekki með neinar væntingar fyrir neinu þar sem það er ekki sniðugt að vænta mikils og svo verður allt ömurlegt eins og ég sagði áður en allvegana þá skypaði ég við fjölskylduna mína og horfði á þau opna pakkana á skype ( mjög óhollt fyrir þig en á þessum tímapunkti var mér svosem sama). Kl 7 var svo ferðinni haldið í kirkjuna í messu í 2 og hálfan tíma, get ekki sagt að ég sé mjög trúuð manneskja og þurfa þola þetta kirkjuvesen er mjög erfitt fyrir mig. Þau betla alltaf um peningar í miðjari messu til þess að borga blóm eða annað eins sem fer rosalega í mig að það kosti að fara í kirkju. Einnig borgar hver og einn í mánuði kirkjunni pening upp í sjóð og guð má vita í hvað þessi sjóður fer í... Ég er allveg að gerast nunna... Falskasti kórinn söng og svo í endann var mjög fallegur atburður, öll ljósin í kirkjunni voru slökkt og svo fengu allir kerti og sungu saman ó helga nótt, maður fékk allveg gæsahúð.. 
Eftir það tóku svo allir með sér jólamatinn með í kirkjuna og borðaði ég kjúkling og salat og allveg skrítnustu jól í heimi..

 




Svo var farið heim og ég var allveg með tárin í augunum á leiðinni heim en þegar við komum heim sátum við öll saman við jólatréð og mamma mín kom með gítarbók handa mér í pakka og ég opnaði og var ekkert smá glöð og svo sagði hún mér að loka augunum og kom með gítar og ég hef bara sjaldan verið jafn glöð með eitthverja gjöf að ég grét liggur við úr gleði. Í mexico er semsagt opnað pakkana kl 12 og sprengt flugelda þannig við kveiktum í stjörnuljósum.

 

Þetta er semsagt mamma mín og svo ég & nýji gítarinn




Á jóladag var svo haldið
á mcdonalds með vinum mínum
 í smá jóladagsmat








Á annan í jólum var svo eytt gleðitímum í bílnum í góðar 12 klukkustundir, elska hvað mexicanar átta sig ekki á því að það er ódýrara að fljúga en að keyra en það stoppar engann því allir keyra.
Við komum til Mérida um kvöldið og fórum á allskonar söfn, ströndina, verslað & borðað.. Ég fór svo eitt kvöldið að hitta skiptinemana sem búa þar og hitti norskan strák sem er hálf íslenskur og kunni nokkur orð í íslensku og það er svo aðeins of nett að hitta fólk sem veit eitthvað um Ísland. Ég er ekki frá því að hann vissi meira en ég, þegar fólk kemur til íslands finnst það ógeðslegt að fara í sturtu því þau finna lykt eins og við finnum þegar við keyrum í gegnum hveragerði. Einnig að "Eyjafjallajökull" heitir eftir eyju, fjalli & jökli.. Við röltum um miðbæinn og um kvöldið fórum við út að borða og hittum við þar fullt af skiptinemum frá sitthvorum prógrömunum og vorum við þarna sirka 20 frá mismunandi löndum og það er ótrúlegur hlutur að heyra öll tungumáli á sama tíma. Þar var einn strákur sem missti sig yfir því að ég var frá Íslandi og þá meina ég gjörsamlega fór í spenningskast en þá er Sigurrós uppáhalds hljómsveitin hans og var hann bara með allt um þau í símanum sínum og var kvöldinu eitt að tala um Ísland.

 Áramótin mín voru einnig mjög skrítin
og eina ferðina enn var haldið í kirkjuna en
 var kirkjan full þannig horfðum við á messuna 
á big screen inní íþróttasal 
og þar var sungið mitt þóst vera í messu og var
kvöldið endað með því
að fara út að borða.
Mexicanskur matur er besti matur í heimi og áður en ég kem heim ætla ég að vera búin að senda öll fötin mín til íslands til þess að getað fyllt ferðatöskuna af matarbirgðum og allskonar dóti.  En núna er vika í nýja skólann þannig vonandi gengur það vel þangað til næst  xx












No comments:

Post a Comment