Tuesday, August 28, 2012

Fyrstu dagarnir

Núna er ég búin að vera 3 daga í Tuxtla og þegar við flugum frá mexico city til Tuxtla kom fjölskyldan að sækja mig á flugvöllinn og ég vissi náttrúlega ekkert hvernig fjölskyldu ég myndi fá en þarna beið mín yndisleg fjölskylda, 3 stelpur , 9 ára, 11 ára og 17 ára sem ég náði ekki allveg hvað heita en þessi 17 ára heitir allvegana Alice, og mamma og pabbi. Við keyrðum heim frá flugvöllinum og þau voru að kenna mér spænsku alla leiðina sem ég var ekki beint að nenna þar sem ég var mjög þreytt, svo fórum við í mallið og ég vissi ekki að þetta væri kvöldmatartími þannig ég vildi ekkert að borða og þau fengu sér kvöldmat. Svo keyrðum við heim og komum að húsinu og i hverfinu er viðbjóoooððsleg lykt stundum útaf eitthverju kjúklingabúi, við komum inn og þá er ekkert herbergi fyrir mig né rúmm... En ég skipti um föt og við keyrðum í annan bæ til að fara hitta fjölskylduna hjá pabbanu, þau kunnu enga ensku þannig ég sat þarna eins og hálviti meðan allir störðu á augun mín útaf engin hérna er með græn augu en svo hættu þau ekki að spurja hvort ég  væri þreytt þannig við keyrðum heim og ég þurfti að sofa með stelpunni í hjónaherberginu útaf pabbinn var að vinna, hann er læknir og hún er hjúkka en ég fatta ekki allveg ég sé þau aldrei vinna. Við þurfum að vakna kl 5 til að fara í skólann og þá hitti ég hina skiptinema, ég þakka fyrir að ég sé ekki ein að ganga í gegnum þetta. En við fengum svona tour um skólann og svo fórum við í tíma. Sem betur fer var fyrsti tíminn ensku tími og ég skildi allt í honum en allir voru að stara og stara og svo komu eitthverjir tímar sem ég skildi ekkert í en ég dottaði bara þarna sitjandi og 2 stelpur spurðu hvort ég vildi koma á svona american football æfingu með þeim haha... Sjáiði mér fyrir ykkur að spila amerískan fótbolta neeei!! en ég sagði já útaf það var alltaf verið að segja manni að segja já við öllu:). Svo þegar skólinn var búinn fór ég heim og svaf thank god og bauð Alice mér að koma með sér í enskutíma og ég sagði bara já því ég nennti ekki að hanga ein heima með fjölskyldunni og maður þarf ekki að gera NEITT hérna, það er bara þjónað manni hægri vinstri en svo fórum við í afmæli hjá eitthverjum frænda sem ég fekk looooksins netsamband í símanum þar sem að það virkaði ekki heima fyrenn núna en svo fór ég að sofa og ég svaf í rúmminu hja stelpunni meðan hún svaf á gólfinu... Frekar óþægilegt  en svo vaknaði ég í morgun og það var ekki skóli heldur eitthver kynning þar sem eg sat í 3 tima sofandi en svo fórum við í bankann og það er ekki hægt að skipta dollurum grate! Svaka jákvætt blogg í gangi hérna ennn svo fórum við að fá tacos og svo heim ! Það eru allir hérna rosalega opnir og allir kysssast hæ og það er alltaf eitthver að leiða mann og það er mjög erfitt að hafa samskipti þar sem þau tala mjööög vonda ensku og sumir bara enga en vonanndi verður þetta aðeins skárra þegar ég læri spænsku og ef mér skilst rétt er ég að fara í spænskutíma á föstudaginn held ég ! Maður flýtur bara með öllum þar sem ég veit aldrei hvert ég er að fara ! Líka hinir skiptinemarnir eru æði , þegar við vorum á kynninguni í dag var ein stelpan farin að gráta og ég skildi hana svo óendalega með ég væri hágrenjandi ef að ég væri ein eða ekki alltaf með eitthverjum og önnur stelpan var ika að segja mér að hún hágrét í gær en hún er með sérherbergi heppiin! enn þangað til næst....

2 comments:

  1. Líður eins og þú sért að lýsa minum fyrstu dögum í Mexico fyrir 8 árum, fékk alveg hroll. Grenjaðu bara, eins mikið og þú vilt, svo ótrúlega eðlilegt, en hugsaðu til þess að þetta fer allt batnandi! Munt eignast fullt af vinum, læra helling af spænsku (því minni enska sem fólkið talar, því meiri spænska). Fyrstu vikurnar eru ógeðslega erfiðar, ert einn tilfinningarússíbani og veist ekkert hvernig þér á að líða. Vertu bara opin og mundu að njóta njóta njóta... Og farðu varlega, hlakka til að lesa meira :)
    Anna

    ReplyDelete
  2. Jáa! haha, núna fattaði ég hvað þetta er mikill tilfingarússíbani en sem betur fer er fjölskyldan yndisleg og vonandi verður hún áfram svoleiðis <3 Takk fyrir stuðninginn anna mín ég grenja ur mér augun næstu vikur inni á klósetti haha...

    ReplyDelete